Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1921, Page 9

Eimreiðin - 01.01.1921, Page 9
ElliRElUtNt DR. MATTHÍAS JOCHUMSSON 9 stórskornn og einkennilegu fólki, sem var eins og lifandi dæmi fornrar glæsimensku. Og á hinn bóginn lærði hann af sögunni að gera erfiljóð sín að meitluðum mannlýsing- um. En þau ljóð eru þó framar öllu barátta iifsins og kærleikans við dauðann. Dauðinn var hinn mikli óvinur, sem Matthías stóð öndverður gegn alla æfi, sem hafði sært hann sjálfan dýpsta sárinu, sem altaf var að hrifa burt einhvern sem hann vildi ekki missa, særa einhvern sem hann elskaði. Hann viidi ekki sitja hlutlaus, vildi hugga og líkna.og bjarga með lýsingum sinum frá gleymsku þvi sem hægt var að bjarga. Dauðinn var honum svo hugstæður, að hann sá hann allsstaðar. Það er ekki ein- ungis, að náttúran og mannvirkin dragi síður athygli hans að sér en mennirnir ug saga þeirra, heldur verða þau í ætt við dauðann og hann býst ósjálfrátt til varnar. Honum finst Hróarskeldu dómkirkja ætla að kviksetja sig, og hann hrópar: Gefið loft, gefið loft, gefið lifsandaloft, því eg lifi ekki i rotnandi gröf! Hafísinn verður »hundrað þúsund kumbla kirkjugarðura, sambr. »Dauðinn er lækur og lífið er strá«. Því er ekki furða þótt Dettifoss minni á dauðann. Hann kallar foss- inn Heljar-Bleik. Það ávarp er ekki valið út í bláinn, Hann hefir áður í kvæðinu talað um flyksufax. Það minn- ir á hest. En fossinn, sem er kembdur saman úr mó- rauðu jökulvatni og hvítleitri froðu, verður bleikleitur i sólskininu. Og bleikur hestur er einmitt gamalt draum- tákn dauðans í islenskri þjóðtrú. Kvæðið endar á þvi, að guðdómsgeislinn skin gegnum fossinn, friðarboginn ris upp af hamförum hans. En það er umhugsunin um barnstárin, sem leiðir skáldið til þessa sigurs. Alveg eins var það í lífi hans: mannúðin varð leiðin til trúarinnar. Mörgum verður starsýnast á það, að hann var trúmaður og trúarskáld, og um það má margt segja út af fyrir sig: hann er alinn upp í guðs- ótta, verður prestur, brýtur heilann um trú og vísindi, er lengst af veikur í rétttrúnaðinum. En alt þetta er í raun- inni aukaatriði. Trúin er með mörgu móti, bæði i orði og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.