Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Page 6

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Page 6
6 SIGURÐUR ÞÓRARINSSON Þorsteinn Magnússon var Eyfirðingur. Er það athyglisvert, að þrjár af gagnmerkustu lýsingum, sem til eru af gosum í Vestur- Skaftafellssýslu, eru samdar af aðkomumönnum af Norðurlandi. Skag- firðingurinn Jón Steingrímsson lýsir Skaftáreldum og sveitungi hans, Sveinn Pálsson, Kötlugosinu 1823. Þorsteinn átti til merkra að telja. Þuríður móðir hans var laundóttir séra Sigurðar á Grenjaðarstað Jónssonar biskups Arasonar, og heitinn var hann eftir Þorsteini á Grund, manni Þórunnar biskupsdóttur. Faðir hans var bóndi í Stóra- dal í Eyjafirði. Þorsteinn er fæddur um 1570, og hann dó 1655. Talið er, að hann hafi lært erlendis. Hann er enn nyrðra 1601, en fékk hálft Þykkvabæjarklaustur 1612 og allt 1624 og hélt því til 1653. H@.nn hélt Skaftafellsþing með Þorleifi Magnússyni 1636—52. Páll E. ÓÍa- son, sem hér er farið eftir, segir hann hafa verið lögspakastan íslend- inga á sinni tíð og að hann hafi þótt ágætur maður, þótt héraðsríkur væri og kvenhollur. Hann samdi ýmsar ritgerðir lögfræðilegs efnis og gerði tillögur um breytingar á lögbókinni. Það langmerkasta, sem liggur eftir Þorstein Magnússon, mun þó tvímælalaust vera lýsing hans á Kötlugosinu 1625. Hún er aðalsam- tímaheimildin um þetta gos. Það, sem Skarðsárannáll hefur um það, er nær allt frá Þorsteini, og það litla, sem Gísli Oddsson hefur um það að segja, gæti og verið úr frásögn hans, sbr. síðar, enda þótt svo þurfi ekki að vera, þar eð Gísli bjó þá í Holti. Mikilsvert er, að frásögn Þorsteins er lýsing sjónarvotts, sem bú- settur var nærri eldstöðvunum, þar sem Katla blasir við. Þetta er elzta lýsing Kötlugoss, sem skráð er af sjónarvotti, og miklu ýtar- legri en nokkur lýsing, sem fram til þess hafði verið skráð af eldgosi á Islandi. Til efs er, að nokkurs staðar hafi fyrir þann tíma verið skráð svo greinargóð og gagnmerk goslýsing að undantekinni hinni klassísku lýsingu Pliníusar yngra á gosinu í Vesúvíusi 79 e. Kr., því er eyddi Herculaneum og Pompeii. Þorsteinn lýsir gosinu frá degi til dags, eins og hann og heimilis- fólk hans upplifði það á Þykkvabæjarklaustri frá því er jarðskjálftar fóru að finnast í fyrstu birting 2. september, þar til er allt var „í stilli orðið“ hinn 14. september, svo að hvorki varð vart við „hljóð, ösku, eld né reyk“. En bæði hlaup og gjóskufall höfðu herjað mjög á Álftaverið, og í þá 12 sólarhringa, sem gosið varaði, hafði, svo að vitnað sé í frásögn Þorsteins, „enginn maður nýtan svefn eða rólega stund, hvorki nótt né dag, að ekki væri enn sami kvíði, skelfing og ótti á hverjum manni, þó einna mest á börnum og kvenfólki, en þó
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.