Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Blaðsíða 84
84
ÓLAFUR F. HJARTAR
Vængblik varst þú yfir
vogum ljósra hólma,
lyng, sem fram með lækjum
löðursilfrað skín,
viðlög vorsins fugla,
vetrarþögn í skógi.
Þú varst heiða og hreina
hjartalindin mín.
Röð kvæðanna er síðan hin sama og hér hefur fyrr verið greint
frá. Ljóðabókinni lýkur með stuttri frásögn, Nordahl Grieg flyver over
Norskekysten. Þetta er niðurlag greinar, sem lesa má í Fána Noregs.
Greinin nefnist Fáninn og er dagsett 7. maí 1942.
íslandskvæðið náði ekki í tæka tíð til þess að komast í Friheten.
Það birtist í tímaritinu Helgafelli 1944 og nefnist Tingvellir — Til
en islandsk venn. Síðar er það prentað í þýðingu Magnúsar Ásgeirs-
sonar í bókinni Afmœliskveðja til Ragnars Jónssonar 7. febrúar 1954. Þar
stendur: Á Þingvöllum — Til íslenzks vinar — Ragnars Jónssonar. Kvæð-
ið kom einnig sérprentað í 30 eintökum. Þá má og sjá það í Helga-
felli 1955.
I ritsafni Nordahls Grieg, sem geiið var út í Ósló 1947, er Þing-
vallakvæðið látið fylgja öðrum kvæðum í Friheten. Þar er einnig ann-
að kvæði, sem nefnist Sjofolk. I sama bindi eru síðan birt þrjú kvæði,
sem bera titilinn Nár krigen er forbi. Kvæðin heita Sjomannen, Den
menneskelige natur og Viggo Hansteen. Hið fyrsta er ort á Jan Mayen,
annað kvæðið og hið lengsta er ort á Þingvöllum, en hið þriðja er
upprunalegur endir á kvæðinu um Viggo Hansteen.
Fyrir nokkrum árum barst Landsbókasafni fyrirspurn um Friheten
frá Háskólabókasafninu í Ósló. Höfðu bókaverðir þar grun um
fleiri afbrigði útgáfunnar. Ásgeir Hjartarson bókavörður og greinarhöf-
undur leituðu eftir nánari vitneskju hjá Helgafelli, og varð niður-
staðan þessi:
1. Eitt eintak með frábrugðnu titilblaði og sérstakri áprentun til
Hákonar konungs, gert að fyrirmælum skáldsins.
2. 50 eintök með svofelldri áletrun:
Dette eksemplaret er ett av femti som forfatteren lot trykke spesielt for
sine venner.