Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Blaðsíða 89
LANDSBÓKASAFNIÐ 1975
89
HANDRITADEILD Handritakostur Landsbókasafns var í árs-
lok 12866 skráð handrit.
Fast starfslið var hið sanra og á síðastliðnu ári.
Solveig Kolbeinsdóttir cand. mag. vann í ígripum að skráningu
bréfasafna.
Nú verður getið nokkurra handrita, er Landsbókasafni voru gefin
á árinu:
Carl Gustav XVI. Svíakonungur afhenti 10. júní forseta íslands,
dr. Kristjáni Eldjárn, að viðstöddum m. a. Vilhjálmi Hjálmarssyni
menntamálaráðherra og dr. LTno Willers ríkisbókaverði Svía í aðal-
lestrarsal I.andsbókasafns blað úr Kringlu, hið eina, sem varðveitzt
hefur úr því elzta og merkasta handriti Heimskringlu, sem menn nú
vita deili á. Blaðið kemur hingað úr Konungsbókhlöðu í Stokkhólmi,
þar sem það hefur borið safnmerkið: Cod. Holm. Isl. Perg. fol. nr. 9.
Ætlunin er að birta í Árbók Landsbókasafns á næsta ári grein um
Kringlublaðið.
Börn Guttorms J. Guttormssonar skálds og Jensínu konu hans,
dæturnar Pálína, Bergljót og Hulda og sonurinn Gilbert Konráð,
sendu Landsbókasafni íslands að gjöf mikið og merkilegt safn hand-
rita föður síns, en fjölskyldan hafði áður að honum látnum gefið
Manitobaháskóla í Winnipeg bókasafn hans, mörg hundruð binda.
í gjöfinni til Landsbókasafns eru saman komin margvísleg handrit
skáldsins, kvæði, sögur, leikrit, endurminningar auk mikils safns bréfa,
er honum bárust á langri ævi.
Nokkur handrit Guttorms skálds voru á þeirri sýningu nokkurra
sýnishorna bókmenntaiðju íslendinga í Vesturheimi, er stóð í and-
dyri Safnahússins og frá segir á öðrum stað í þessu yfirliti.
Anna Marteinsson í Winnipeg (áður í Ottawa) sendi Landsbóka-
safni að gjöf ýmis handrit Sigurðar Júl. Jóhannessonar læknis og
skálds, en þau hafði hún fengið frá dætrum Sigurðar, Fríðu og Svan-
hvíti, og var þeim ráðstafað hingað heim með vitorði þeirra.
Eru þar í fyrsta lagi frumsamin ljóð og þýdd, þá laust mál af
ýmsu tagi, svo sem unglingasögur; þrír smáþættir um Einar Bene-
diktsson; endurminningar frá Svarfhóli; kafli, er nefnist ,,Þjóðhátíðir“.
Þá eru afmælis- og minningarljóð um Sigurð eftir ýmsa höfunda,
blaðaúrklippur og smáprent með kvæðum og greinum eftir Sigurð
og um hann og sitthvað fleira.