Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Blaðsíða 56
56
FINNBOGI GUÐMUNDSSON
cftfc aj.ttfr.fc ^.-|o tnó^u%u*iáttmg-tfVíta
Öítk ClýlU (ÚM‘Xu\& R tó 'ttöí'tföR fetí
feíwS' cú fafp á áttfev^-t tífe ^ö>cfti»r ÉÖft
vjm-fctutná tiþta^ete jH^vtnwb ðtotfett1 at> ctm-öegu & mti^cgt dB
tfajtótt áfcrtóáw- tWv'cóftcmp;Siö^&aitim-tfetfpdSí 4p-íf*
t* KöHímt'öt^i. -feo öfit-aatt^$w -t> tffi*. fte^tól á%h.
tfotv ^ft&Ott-íöttv kngS» anyttöt af $ öUpr-ttóW^
Ur annál Flateyjarbókar við árið 1350, en seint í greininni er getið um fæðingu
Jóns Hákonarsonar.
störfin, og lestrarkunnátta verður almennari. Af kunnum rithöfundum
og skáldum aldarinnar ber hæst þá frændur, Sturlunga, Snorra Sturlu-
son og bróðursyni hans, Sturlu Þórðarson og Ólaf hvítaskáld, en svo
eru ýmsir aðrir, sem sverja sig í ættina að þessu leyti, og skal þar
nefndur til Svarthöfði Dufgusson, sem ætlað er, að hafi ritað eða sagt
fyrir Þórðar sögu kakala. Svarthöfði var sonarsonur Þuríðar, laun-
getinnar dóttur Hvamm-Sturlu. Og Svarthöfði fleytir bókhneigðinni
áfram bæði beint og óbeint. Synir hans og Herdísar Oddsdóttur (syst-
ur Hrafns lögmanns) voru Óli, tengdafaðir Hauks lögmanns Erlends-
sonar, sem Hauksbók er kennd við, og Björn, faðir Gissurar galla, föð-
ur Hákonar, föður Jóns, þess er rita lét Vatnshyrnu og Flateyjarbók.
Fyrir Flateyjarbók fer sem kunnugt er stórmerkur formáli, er hefst
á þessa leið: Þessa bók á Jón Hákonarson — en síðan er greint frá
efni bókarinnar og sagt, hverjir skrifuðu hana og hversu þeir skiptu
með sér verkum.
Bókinni lýkur á annál eða eins og segir í formálanum: þá hefur
upp annál, þegar heimurinn er skaptur. Tekur hann allt til þess, er
nú er komið heimstöðunni.
I annálnum árið 1350 stendur m. a.: Fæddur Jón Hákonarson, -
og er skemmtilegt að veita því athygli, að skrifarinn, sr. Magnús
Þórhallsson, stækkar ögn skriftina, þegar hann skrifar nafn húsbónda
síns, og hefur auk þess örlitlu meira bil beggja vegna við þessa ann-
álsgrein en hann annars er vanur. Mun þetta gert vitandi eða óvit-
andi í virðingarskyni við Jón.
Vitað er, að Jón Hákonarson keypti Víðidalstungu og fleiri jarðir
af Magnúsi Gissurarsyni, föðurbróður sínum, 11. febrúar 1385, og
ekki er ólíklegt, að hann hafi um svipað leyti falið sr. Jóni Þórðarsyni,
öðrum tveggja ritaranna, að hefja ritun Flateyjarbókar. í kafla fram-