Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Síða 56

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Síða 56
56 FINNBOGI GUÐMUNDSSON cftfc aj.ttfr.fc ^.-|o tnó^u%u*iáttmg-tfVíta Öítk ClýlU (ÚM‘Xu\& R tó 'ttöí'tföR fetí feíwS' cú fafp á áttfev^-t tífe ^ö>cfti»r ÉÖft vjm-fctutná tiþta^ete jH^vtnwb ðtotfett1 at> ctm-öegu & mti^cgt dB tfajtótt áfcrtóáw- tWv'cóftcmp;Siö^&aitim-tfetfpdSí 4p-íf* t* KöHímt'öt^i. -feo öfit-aatt^$w -t> tffi*. fte^tól á%h. tfotv ^ft&Ott-íöttv kngS» anyttöt af $ öUpr-ttóW^ Ur annál Flateyjarbókar við árið 1350, en seint í greininni er getið um fæðingu Jóns Hákonarsonar. störfin, og lestrarkunnátta verður almennari. Af kunnum rithöfundum og skáldum aldarinnar ber hæst þá frændur, Sturlunga, Snorra Sturlu- son og bróðursyni hans, Sturlu Þórðarson og Ólaf hvítaskáld, en svo eru ýmsir aðrir, sem sverja sig í ættina að þessu leyti, og skal þar nefndur til Svarthöfði Dufgusson, sem ætlað er, að hafi ritað eða sagt fyrir Þórðar sögu kakala. Svarthöfði var sonarsonur Þuríðar, laun- getinnar dóttur Hvamm-Sturlu. Og Svarthöfði fleytir bókhneigðinni áfram bæði beint og óbeint. Synir hans og Herdísar Oddsdóttur (syst- ur Hrafns lögmanns) voru Óli, tengdafaðir Hauks lögmanns Erlends- sonar, sem Hauksbók er kennd við, og Björn, faðir Gissurar galla, föð- ur Hákonar, föður Jóns, þess er rita lét Vatnshyrnu og Flateyjarbók. Fyrir Flateyjarbók fer sem kunnugt er stórmerkur formáli, er hefst á þessa leið: Þessa bók á Jón Hákonarson — en síðan er greint frá efni bókarinnar og sagt, hverjir skrifuðu hana og hversu þeir skiptu með sér verkum. Bókinni lýkur á annál eða eins og segir í formálanum: þá hefur upp annál, þegar heimurinn er skaptur. Tekur hann allt til þess, er nú er komið heimstöðunni. I annálnum árið 1350 stendur m. a.: Fæddur Jón Hákonarson, - og er skemmtilegt að veita því athygli, að skrifarinn, sr. Magnús Þórhallsson, stækkar ögn skriftina, þegar hann skrifar nafn húsbónda síns, og hefur auk þess örlitlu meira bil beggja vegna við þessa ann- álsgrein en hann annars er vanur. Mun þetta gert vitandi eða óvit- andi í virðingarskyni við Jón. Vitað er, að Jón Hákonarson keypti Víðidalstungu og fleiri jarðir af Magnúsi Gissurarsyni, föðurbróður sínum, 11. febrúar 1385, og ekki er ólíklegt, að hann hafi um svipað leyti falið sr. Jóni Þórðarsyni, öðrum tveggja ritaranna, að hefja ritun Flateyjarbókar. í kafla fram-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.