Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Page 29
ÚR BRÉFUM SVEINS LÆKNIS PÁLSSONAR
29
Upphaf ódagsetts bréfs Sveins Pálssonar læknis til Bjarna Thorsteinssonar amtmanns,
sbr. næstu bls.
rek í tærnar, ákalla eg ydur! Þad er satt jeg aflegg ydur skyldugasta
þacklæti fyrir þad þier hjálpudud til ad S(ýslu)m(adur) M(agnús)
Steph(ensen)6 ecki leitadi vetr vistar til mín, heldr lendti hiá þeim
geistlega, sem allir vita ecki spillir honum vid almenning, eins og
jeg í nærstl. 3 ár ecki mun hafa farid varhluta af misþánka manna
fyrir; ecki þar fyrir mig lángadi ecki til ad gieta giört honum allt
gott, enn máttrinn fer ecki alltíd eftir vilianum.
Ad endíngu verdid þier ad lofa mier ad koma til sjálfs míns (sic),
og spyria ydur eda rádfæra um tvennt:
1. Á nærstl. vori dæmdi eg dóm —- gud sie oss næstr — í Selialands
Landamerkia sök, Dóminn, eintómann, sendi eg strax í Amtid,
med Afsökun: ad eg í þann svip ei komst til ad afskrifa Actinn
siálfann, og fyrirspurn: hvört eg sídar skyldi innsenda hann? Hér
uppá mun eckert svar komid. Hvörninn mun þetta fara?