Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Qupperneq 32
32
ÚR BRÉFUM SVEINS LÆKNIS PÁLSSONAR
1 Dagsetningu vantar á bréfið en Bjarpi amtmaður hefur skrifað á hausinn, að hann hafi
svarað því 16. maí 1824.
2 Þórður Bjarnason (1793—1835) stúdent, umboðsmaður Kirkjubæjarklausturs, bjó í Svið-
holti.
3 Sveinn Alexandersson umboðsmaður á Sólheimum.
4 Ingimundur Þorsteinsson.
5 án þess að brjóta lög.
6 í stuttu máli.
7 hjálpargögn og efnisatriði.
8 Lifið heilir.
Viik 4 Julii 1824
Hærstvyrdti Herra Amtmadr!
Med ferdamönnum gafst mier ecki, hvörsu sem mig þar til lángadi,
tími til ad þacka ydar Velborinheita kiærkomna bref af 6ta Junii
med Biarnesen fengid þ. 25ta s. m. ásamt med ydar, mier sanngull-
vægu Annotationer vicl E(richsens) vitam. Þad var i svoddan flug-
hasti, og med óvæntri flýti ferd Ingimundar frá Selialandi er eg
sendi klór mitt í vor, ad jeg gat eckert skrifad sem mier þókti athug-
andi, eckert afbatad minn hrakstýl, hvörn eg vildi gieta lagfært vída
vid seirni gegnumlestr og hreinskrifun. Enn þér hafid nú miklu þar
í aflokid, og — þad sem best er — seinkad gánginum svo, ad máskie
handritid kiæmist med nærsta Póstskipi, þó med því móti þier dveljid
sydra vetrarlángt!1 Þó eg viti þetta bref komi þegar bágast stendr
á og verst er med tómstundir fyrir ydur, læt eg fyrri Partinn fara
med, og er hann mest og best ad þacka Hra. Prof(asti) og nú biskups-
efni St(eingrími) Jónss(yni) og nockud þeim frændum sr. Bened(ikt)
í Hraungerdi og sr. Brynj(ólfi) á Langholti.2 Fyrst hef eg aldrei verid
lidugr í stíl nema höppum og glöppum, enn þad lítid sem var, er
nú þó farid, bædi af vana- og minnisleysi. Enn þótt eg lesi flest þad
sem nú útkémr, af eda undan eldi þeirra gódu Stýlista Conf(erensráds)
St(ephensens), Prof(essors) Magnúsens og bests allra þeirra S(ýslu)-
m(ann)s Espólíns, þá er þad eins og þegar F(anden) læser Bibelen,
lífid fer og smásaman, — sem þér drepid á í Annot(ationerne), ad
verda byrdi, mest þó af ólund útaf því ad eldast, og siá til baka:
ad eckert er giört af mörgu sem gat giörst, svo nú eru farnar ad
renna á mig 2 grímur: ad vilja vinna þad til ad verda úngur á ný,
ad lifa allt upp aptur! Svaghed mun heldr enn Heroisme ad þola
ecki slit, aldurdóm og umsköpun, þótt eingva idee, eda rétta bevísíng
hafi madur um þá Umsköpun! en — ofmikid hér um!
Ecki giet eg eptir mier talid, ef lifi, og bída má fyrst um sinn, ad
hreinskrifa blödin, því í hægdum kynni eg gieta lagad eitt og annad,