Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Page 42

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Page 42
42 HARALDUR SIGURÐSSON skiptanna. Líklega hefur hann átt prentsmiðjuna sjálfur, enda tíðk- aðist það mjög, að farandprentarar, sem margir voru um leið lær- dómsmenn, færu stað úr stað með prenttæki sín og pappír. Á áfanga- stöðum unnu þeir langa tíma eða skamma eftir atvikum, tóku sig síðan upp og héldu til næsta bæjar, þegar verkefni þraut. Prentsmiðja séra Jóns hefur áreiðanlega verið vanbúin að letri og tækjum. Af meginmálsletri hefur hún ekki átt nema eina stærð af svo- nefndu Schw abacher-letri, sem sumir hafa nefnt Svávalækjarletur, og virðist það hafa verið óvandað að gerð. Þá mun hann hafa átt eitt- hvert hrafl af öðrurn letrum, skreytistöfum og greinirósum. Hallbjörn Halldórsson áætlar, að allur farningur prentsmiðjunnar hafi ekki verið nema „hóflegar klyfjar á tvo tveggja grjónatunnu hesta“, en svo voru stundum nefndir hestar, er þóttu í traustara lagi til áburðar. Einhverjum, sem liti inn í prentsmiðjubákn okkar tíma, mundi þykja snautlegt, ef hann mætti að því loknu líta inn í þessa fyrstu prent- smiðju landsins. Fátt er vitað urn, hverjar bækur voru fyrst prentaðar. Arngrímur lærði segir, að Jón biskup hafi látið prenta „lesbók yfir guðspjöll og sunnudagapistla . . . þar að auki nokkur andleg kvæði og, að sögn manna, handbók presta, enn fremur ef til vill eitt og annað smárit“. Þetta er allt svo lauslegt, að ekki verða hendur festar á né vitað, við hvað er átt. Sæmilega traustar heimildir eru þó fyrir tveimur bókum. Onnur þeirra var messubók, venjulega nefnd Breviarium Holense. Síðasta eintak hennar fórst í brunanum mikla í Kaupmannahöfn 1728, þar sem hún brann með bókasafni Árna Magnússonar. Hin bókin er „Fjórir guðspjallamenn, er biskup Jón gamli að Hólum lét útleggja og þrykkja sem hans formáli útvísar, ef þar finnst nokkurt exemplar.“ Torfi Jónsson prestur í Gaulverjabæ segir, að hún hafi verið lögð í kistu með Brynjólfi biskupi Sveinssyni, og er hennar þar að leita. Ekkert blað er nú kunnugt með fullri vissu úr bókum þeim, er Jón Arason lét prenta. Fyrir allmörgum árum fundust tvö blöð úr ókunnri messubók í spjöldum á íslenzku handriti, er hafði borizt til Svíþjóðar. Margir hafa það fyrir satt, að þau séu úr Breviarium Holense. Letur er hið sama og á bókum þeim, sem prentaðar voru eftir lát Jóns biskups í prentsmiðju Jóns Matthíassonar á Breiðaból- stað í Vesturhópi. Letrið hefur ugglaust verið algengt um þessar mundir, og mikill fjöldi bóka, sem við vitum að var gerður um þessar mundir, er nú ókunnur. Hinar eru ef til vill litlu færri, sem við höf-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.