Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Page 45

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Page 45
BÓKAGERÐ GUÐBRANDS ÞORLÁKSSONAR BISKUPS 45 hann var kallaður til biskups, en slapp létt frá, svo að gera má ráð fyrir, að hann haíi síðar á ævinni minnzt æskubreka sinna. Markmið Guðbrands biskups á stóli var að festa hinn nýja sið í sessi og berjast gegn eldri hugmyndum, sem minntu á hinn forna og áttu þar rætur. Hann mun hafa talið eilífa sáluhjálp landa sinna varða mestu, en frá hans bæjardyrum var hún bundin hreinu og ómenguðu evangelíum eftir kokkabók Lúthers og sporgöngumanna hans. Kirkju- stjórn hans var sterk, en svo virðist, að bókagerð og bókaútgáfa hafi alla tíð verið Guðbrandi hugtækast viðfangsefni, og af henni hlaut hann mestan frama lífs og liðinn. Með henni var þó aðeins stefnt að einu marki, eflingu kristindómsins. Sjálfur var biskup mikilvirkur rithöf- undur, en að auki gat hann kallað sér til aðstoðar flesta menntamenn landsins, sem eitthvað höfðu að selja í sumblið. Þegar Guðbrandur kom að Breiðabólstað, var Jón, sonur séra Jóns Matthíassonar, orðinn eigandi prentsmiðjunnar. Hinn ungi klerkur hefur þá líklega komizt fyrst í bein kynni við „frú typógrafiu”. Ekki er vitað, hvað þeim Jóni prentara og Guðbrandi fór á milli, þegar hinn síðarnefndi var setztur að stóli, en ekki leið á löngu, unz prentsmiðjan og Jón prentari voru komin til Hóla og undirbúningur hafinn að bóka- útgáfu. Ef til vill hafa þeir átt prentsmiðjuna í félagi fyrstu árin, og væri þá ekki fjarri sanni, að Jón kynni að hafa átt gögn hinnar fornu prentsmiðju, en biskup lagt fram fé til kaupa á nýjum búnaði, pressu og letrum, sem vitað er, að hann útvegaði. 1 þá átt gæti það bent, að Guðbrandur segir í bréfi til Páls Madsens Sjálandsbiskups árið 1573, að hann hafi (habeo) prentsmiðju. Sennilega hefði hann kveðið fastar að orði, ef hann hefði beinlínis talið sig eiga hana. Ekki er vitað með öruggri vissu, hver varð fyrst bóka, sem Guð- brandur gaf út, en almennt er álitið, að það hafi verið Lífsins vegur eftir Niels Hemmingsen, læriföður biskups við háskólann í Kaup- mannahöfn. Bókina þýddi hann sjálfur, og kom hún út 1575. I ávarps- orðum til vinar síns, sem hann tileinkar bókina, kveðst hann þýða hana „yðrum börnum og varnaði sérdeilis til kristilegrar undirvís- anar“. Það er skylda góðs húsbónda að halda „yðar börnum og fólki þar til að heyra og lesa þess háttar guðlegar fræðibækur, en ei sem margur gjörir að láta í sínum húsum oftar iðkást heiðinna manna sögur, rímur og mansöngva heldur en guðsorð“. Þetta var stefnuskrá biskups, sem hann miðaði alla bókagerð sína við, og sá steinn, sem hann átti lengst eftir að klappa.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.