Réttur - 01.02.1925, Qupperneq 12
iRjetiur
14
ræður fyrir ykkur, svo að tugum klukkutima skiftir, um
land- og lóðaskatt, og þið vitið vel, hversu ákafur fylgis-
maður þeirrar skattamálastefnu jeg hefi altaf verið.« Jeg
vildi, að jeg mætti lesa alla ræðuna, því að hún skýrir
málið miklu betur en jeg get búist við að gera nú. —
Jeg vil Ieyfa mjer að tilfæra aðra málsgrein úr ræðu ráð-
herrans (W. C.): »Núverandi skattamálaskipulag er orðið
svo úrelt og drepandi, svo mikil hindrun á nýjum fyrir-
tækjum og almennum framförum, og sjerstaklega þung-
bært fyrir fátæklingana, að það er í engu betra en skatta-
farganið og korntollslögin á hallærisárunum um 1840.
Nú eru breytingatímar og nýjar framfarir í vændum. »Þið,
sem hljótið það hlutverk að Iosa landið úr læðingi (eign-
arhaldi einstaklinga) og opna það til almenningsnota,
vinnið miklu stærri sigur, þjóðinni til heilla, heldur en
við höfum gert með því, að koma í gegn fullu verslun-
arfrelsi/ sagði Mr. Cobden.«
(Winston Churchill: y>Hvenœr var þessi rœða fliitt ?«)
P. Snowden: »Hvað kemur það málinu við? Vill
hæstv. ráðherra ekki kannast við þessar hugsanir? Jeg
skal nefna stað og stund. Ræðan var flutt í konungl.
leikhúsinu í Edinborg 17. júlí 1909. Ráðherrann hefir
sjálfur sagt, að hann hafi flutt ræður um þetta efni svo
mörgum tugum skiftir. Og hann sagði einnig sjálfur, að
nú væri tækifærið fengið, »tími framfara og breytinga«.
En hvað hefir hann svo gert? Ef þeirri spurningu er
beint til vor, hvers vegna vjer fluttum engar tillögur um
þetta efni í fyrra, þá svara jeg því, sem þeir muna, er
hlýddu þá á fjárlagaræðu mína, að jeg gaf þá ákveðna
yfirlýsingu um, að ef jeg gegndi fjármálaráðherraembætti
þetta ár, þá mundi jeg flytja frumvarp urn þetta efni.
Hæstv. fjármálaráðherra hefir athugað þetta mál í mörg
ár. Pess vegna spyr jeg hann: Virðist honum það rjett-
látt, að þær geysi-fjárupphæðir, sem hann telur að safn-
ist vegna starfsemi þjóðfjelagsins fyrir fje, sem ríkið hefir
lagt til opinberra umbóta, sjeu eign einstaklinga; finst