Réttur - 01.07.1951, Blaðsíða 26
170
RÉTTUR
út í verkfall 20 s. m. Var þetta sótt af mikilli hörku af sambands-
stjórn. Félögin reyndust treg til sem eðlilegt var, því sýnt var að
sambandsstjórn stefndi í ógöngur einar, annaðhvort af þekkingar-
leysi á aðstæðum öllum eða ráðnum hug. — En allt átti þetta brölt
sambandsstjórnar eftir að skýrast nánar síðar.
Aðeins þrjú félög urðu við kröfu sambandsstjórnar um verk-
fall 20. apríl, Verkalýðsfélag Vestmannaeyja, Verkakvennafélagið
Snót og Verkakvennafélagið Framtíðin í Hafnarfirði. Það skal
tekið fram að Snót taldi sér nauðugan einn kost að fylgja verka-
lýðsfélaginu, þar eð svo að segja öll verkakvennavinna lagðist nið-
ur sjálfkrafa við stöðvun hjá verkamönnum.
Þessi verkföll stóðu skamma stund, enda sýnt að þau voru til-
gagnslaus frá upphafi. í Eyjum var verkfalli aflýst á öðrum degi
með einróma fundarsamþykkt í báðum félögum. Hafði þó sam-
bandsstjórn sent fulltrúa til Eyja, til að freista að fá verk-
föllunum haldið áfram, en ráð hans voru að engu metin af verka-
fólki þar. — Litlu síðar var verkfalli Framtíðarinnar í Hafnarfirði
einnig aflýst.
Þá fáu daga sem verkfallið í Hafnarfirði stóð var mikill fyrir-
gangur í sambandsstjórn. Boðaði hún m. a. stjórnir allra verka-
lýðsfélaga í Reykjavík til sameiginlegs fundar til að ræða málið.
Héldu forustumenn sambandsins slíkar æsingaræður yfir stjórn-
unum sem talað væri til þúsunda á átakamiklum útifundi. Var öll
framkoma þeirra með þeim hætti, að stjórnir verkalýðsfélaganna
töldu hæpið að mennirnir væru fullkomlega með réttu ráði. Þó
kom aldrei skýrt fram í ræðum hinna miklu „bardagamanna“
hvert hlutverk þeir ætluðu fundinum. En næsta dag skýrðist
málið. Dundu þá símleiðis yfir félögin fyrirskipanir sambands-
stjórnar um samúðarverkfall með Framtíðinni í Hafnarfirði. Var
þá Ijóst hvert sambandsstjórn hafði stefnt með fundinum daginn
áður, þótt hana brysti kjark til að bera þá upp erindi sitt. —
Ekkert sambandsfélag hafði svo mikið við sambandsstjórn að
anza símskeytum hennar, að undanskildu Bifreiðastjórafélaginu
Hreyfli, sem vísaði fyrirmælunum á bug. Seinna upplýstist að
ýmsir sambandsstjórnarmeðlimir voru ekki til kvaddir í sam-