Andvari - 01.10.1962, Side 52
290
KRISTJÁN ALBERTSSON
ANDVARI
gcta lesið Æsthetik og hvernig studii væri
varið. Þú gjörir mér meiri greiða með
því, en þú getur ímyndað þér, og eg
treysti þér til að segja mér það greini-
lega, sem góðurn vini þínum. Það er
kominn allra mesti fítungur í mig með
að fara ekki í hundana, hvað sem úr því
verður. — Segðu mér líka góði, hvað
Skarphéðni líður.1) Eg er afar forvitinn.
Mér hefur dottið í hug eitt dramatískt
thema, en þó að eg tæki það einhvern
tíma fyrir, þá get eg ekki ímyndað mér,
að því gæti orðið lokið, fyrr en eftir svo
sem 10 ár. Themaið er Galdra-Loftur.
Það verður annars líklegast ekkert úr
því fyrir mér. — Eg veit ekkert um
kvæði mín, því eg hef engin skeyti fengið
frá Jóni Ólafssyni um það. Það er verið
að prenta Þjóðólf nú með byrjun á sögu
eftir mig, sem heitir „Orgelið". Annað
hef eg ekkert gjört í sumar, ekki einu
sinni nokkra lausavísu.
Hræringar eru allmiklar hér í skól-
anum, þó að þær séu enn ekki farnar
að brjótast út. Flestir hinir betri rnenn
vilja nú hætta öllum ríg og fjandskap,
lifa saman skikkanlega og friðsamlega og
búa enn til eitt allsherjar félag. Hvort
þeir séu fleiri, sem eru á móti því, veit
eg enn ekki. En víst er um það að eitt-
hvað gjörist sögulegt bráðum í skólanum,
liver afdrif sem það hefur. En það get
eg sagt þér fyrir víst að eitthvað breytist
forholdið milli félaganna frá því, sem
upphaflega var ætlast til. Komist sam-
eining ekki á verður Opposition og fjand-
skapur hér í skólanum, cf til [vill] verri en
nokkru sinni áður. Eg segi þér það fyrir
satt, að þegar Jón Þorkelsson er orðinn
flokksforingi og einvaldur öðrumegin, þá
1) Hannes var byrjaður á kvæði sínu Skarp-
héSinn í brennunni áður en hann fór að
heiman.
mun cklci friðvænlega á horfast. Enda er
Ingólfur nú á góðum vegi í þá stefnu.
5 nýsveinar hafa verið teknir inn, og
standi Ingólfur að hausti, munu langtum
fleiri komast inn í hann, ef að eins verður
hægt að fá fat í þá. — Glímufélag er
að myndast hér i skólanum; á sunnudag-
inn kemur verður lesið upp frumvarp
til laga fyrir það. Bindisfélagið [sic] mun
halda sinn fyrsta fund á þessu skólaári
bráðlega og tekur víst inn alla busana.
123 í skóla. Enginn kenndur síðan skóli
var settur. Lárus Jóhannesson og Halldór
Bjarnarson sviftir ölmusu fyrir fyllirí og
slagsmál inni hjá Jörundi áður en skóli
var settur.
Eg sendi þér myndirnar, sem þú baðst
mig um, með þessum miða. — Líði þér
jafnan sem bezt.
Vinur þinn
Einar Hjörleifsson.
Einar siglir til Kaupmannahafnar haustið
1881, leggur stund á stjórnfræði við há-
skólann; en lítið mun hafa orðið úr námi,
hugurinn allur við fagrar bókmenntir. Hann
kvæntist sumarið 1885 danskri konu,
Maren Mathilde Petersen; þau fara til
Ameríku nýgift, setjast að í Winnipeg
undir veturinn. Þau eignast tvo drengi,
sem báðir deyja á fyrsta ári, og móðir þeirra
úr barnsfarasótt að síðari drengnum, 1887.
Einar kvæntist síðari konu sinni, Gíslínu
Gísladóttur, 22. september 1888. — Hann
var ritstjóri Heimskringlu nokkrar vikur
1886, en fær ekki örugga fótfestu þar
vestra fyrr en hann gerist ritstjóri Lögbergs
í ársbyrjun 1888. Undir áramótin skrifar
hann Hannesi Hafstein, segir honum frá
lífi sínu af fáorðri einlægni, stillir orðum
sínurn í hóf, um allt sem hann hefur mátt
reyna.
Mrs. Jónasson, sem hann minnist á, er
Rannveig, frændkona Hannesar og upp-
eldissystir, sem er gift Sigtryggi Jónassyni,
einum af stofnendum og eigendum Lög-
bergs.