Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1962, Page 61

Andvari - 01.10.1962, Page 61
ANDVARI UM SAUÐFJÁREIGN ÍSLENDINGA Á SÍÐARI ÖLDUM 299 verður af skýrslum ráðin. En samkvæmt skýrslum þessum virðist fénu hafa fjölgað furðanlega fljótt eftir móðuharðindin. Arið 1791 er fjártalan um 150 þúsund eða þreföld á við það, sem hún var 1784. Arið 1795 er hún orðin fimmföld og árið 1800 sexföld eða rúmlega 300 þúsundir, þ. e. nokkru hærri en fyrir eldgosið, en sennilega nokkru lægri en hún var fyrir fjárkláðann, um 1760. Við upphaf 19. aldar seig enn á ógæfu- hlið. 1801 og 1802 voru fellisvetur, og fækkaði fénu um hvorki meira né minna en helming á þeim tveim árum eða niður í 150 þúsundir. Það er til marks um vanhöldin, að veturgamalt fé er talið fjórum sinnum færra 1802 en 1800, en á þeim tíma voru lömb yfirleitt sett á vetur, og hélzt það fram á 20. öld. Fækkun þessi vinnst upp á næstu átta árum, og árið 1810 er fjártalan aftur svipuð og hún hafði verið um aldamótin. Á næstu 40 árum eða vel það, þ. e. frá 1810 og nokkuð fram á 6. tug 19. aldar má segja, að fénu fari yfirleitt fjölg- andi, þótt einstaka ár sé um talsverða fækkun að ræða. Sú fækkun var aldrei neitt svipuð því, sem átt hafði sér stað á 18. öld eða á árunum 1801—02. Þessi hluti aldarinnar mátti því yfirleitt heita góðæri fyrir sauðfjárbúskapinn hér á landi, enda kom það glöggt fram í vax- andi bjartsýni og framtaksemi með þjóð- inni. Það er naumast nein tilviljun eða eingöngu vegna erlendra áhrifa, að sjálf- stæðisbaráttan í stjórnmálum og verzlunar- málum hefst á þessum áratugum og að áfangar náðust í þeirri baráttu með endur- reisn Alþingis 1845 og verzlunarfrélsinu 1854. En eftir að ný áföll bar að hönd- um, varð árangur um skeið minni í þeirri haráttu. Árið 1853 er sauðfjártalan um 517 þúsundir, en var eins og fyrr var sagt, 300 þúsundir 1810, Munurinn er þó í rauninni talsvert meiri, og stafar það af því, að í hið fyrra sinn var rniðað við framtal á hausti en í hið síðara sinn við framtal á vori. Er haustframtalið, svo sem sr. Arnljótur Ólafsson o. fl. vöktu athygli á í Landshagsskýrslunum, mun hærra. Það kemur líka fram í verzlunarskýrsl- um, að samanlagður útflutningur á ull, prjónlesi og vaðmálum hefir stóraukizt á þessum tíma. En stuttu síðar bar ný vandræði að höndum. Fyrst er þess að geta, að veðr- átta var á árunum 1857—1870 nokkuð erfið, svo að stundum rnáttu harðindi kallast, og sá þess víða merki. Sann- aðist það og nú sem oftar, að sjaldan er ein báran stök. Árið 1855 harst fjárkláði hingað á ný, með útlendu fé. Eins og á 18. öld varð hans enn fyrst vart á Suður- landi, í Mosfellssveit og Flóa. Mest tjón varð af plágu þessari á Suðurlandi og í Borgarfirði, en í Húnavatnssýslu var út- breiðsla hennar stöðvuð með niðurskurði. Reynt var, sem kunnugt er, að vinna hug á veikinni, bæði með niðurskurði og lækningum, og tókst að mestu að ráða niðurlögum hennar á áttunda tug aldar- innar. Síðar tók kláðinn þó að magnast á ný, og fór fram allsherjarkláðaböðun af þeim orsökum á árunum 1903—1905. Harðindi og þó einkum fjárkláðinn ollu því, að sauðfé fór mjög fækkandi á sjötta og sjöunda tug 19. aldar. Sam- kvæmt skýrslum varð fjártalan lægst árið 1859, þá 310 þúsundir, en hafði eins og áður er sagt, verið 517 þúsundir árið 1853. Fénu fór ekki að fjölga aftur til muna fyrr en um 1870. En þá fór það saman, að kláðinn var að mestu úr sög- unni, og jafnframt fór þá í hönd heldur hagstæðara árferði á áttunda tug aldar- innar. Á þessum tíma gerðust þau tíð- indi, að upp tókst útflutningur lifandi fjár (sauða) til Bretlands, en fyrsti sauða- farmurinn, rúmlega 2000 fjár, var raunar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.