Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1962, Page 63

Andvari - 01.10.1962, Page 63
ANDVARI UM SAUÐFJÁRIiIGN ÍSLHNDINGA Á SÍÐAIU ÖLDUM 301 ull eða ullarvörur og tólg til innleggs í verzlun eða sölu á annan hátt til að kaupa fyrir nauðsynjar til heimilisins, og til þess varð sauðaeignin drýgst. Og sama var niðurstaðan þau 30—40 ár, sem lifandi fé var útflutningsvara. Þá voru það fyrst og fremst sauðir, sem út voru fluttir. Lömb komu þar ekki til greina. Sauðirnir voru að jafnaði mjög léttir á fóðrum eftir lambsveturinn, og víða var þeim ekki ætluð fóðurgjöf svo að teljandi væri. — Enn eru þó ótaldar þær sauðfjárafurðirnar, sem e. t. v. voru svcitafólkinu notadrýgstar, sauðamjólkin, og það sem úr henni var unnið, skyr, smjör og ostar, hæði til heimilisnota og sölu. En fráfærurnar studdu líka sauða- eignina, þar sem hagalömbin voru lítils virði nema þau væru sett á vetur. Fráfærur voru almennar um land allt fram yfir síðustu aldamót. Gizkað hefir verið á, að sauðamjólkin hafi á síðari hluta 19. aldar numið að jafnaði sjö milljónum lítra á hverju sumri, og sam- svarar það allgóðri ársnyt úr 2500 kúm. A fyrsta tug þessarar aldar lögðust frá- færurnar niður að miklu leyti, en á heimsstyrjaldarárunum fyrri voru þær sumsstaðar teknar upp á ný, þó ekki til lengdar. Einstaka bændur færðu þó frá fram yfir 1940. En ekki veit ég með vissu, hvort þetta forna búskaparlag er nú útdautt með öllu. í bókmenntum þjóðar- innar mun sú menning, senr tengd var við fráfærurnar, enn lifa um langan aldur. Sláturhúsin og aukning saltkjötsmark- aðanna á Norðurlöndum réðu niðurlög- urn fráfærnanna á fyrsta og öðrurn tug aldarinnar. Síðar kom til sögunnar er- lendur markaður fyrir frosið dilkakjöt utan lands og innan. Sú þróun er alkunn. Ég vil að lokum bæta þessu við: 1 ritgerð um íslenzka atvinnuvegi kemst Jón Sigurðsson m. a. svo að orði árið 1861: „Sauðféð er ein hin fegursta og ábatasamasta og fjölhæfasta eign af öllu kvikfé . . . Það er margt í eðli landsins og fjárins, sem gerir, að það dafnar svo vel og tímgast á lslandi. Það eru hin miklu og góðu heiðalönd og fjallalönd, sem eru rétt sköpuð til fjárhaga. Það er hið kalda og heilnæma loftslag, og það að þar af leiðir, að féð getur lifað svo víða samkvæmt eðli sínu, frjálst og frítt . . Jón Sigurðsson hefir reynzt sannspár um marga hluti hér á landi, og þjóðin hefir hingað til yfirleitt trúað á glögg- skyggni hans í málum hennar. Þó var svo komið um skeið, að ýmsir menn á landi hér virtust hafa misst trúna á það, að Island væri vel fallið til sauðfjárræktar og að sauðfjárbúskapur ætti sér framtíð hér á landi. Slík vantrú á sauðfjárrækt virðist raunar ekki eiga sér formælendur á opinberum vettvangi eins og nú standa sakir. En búskaparlag hefir enn breytzt mjög í seinni tíð. Fóðurgjöf almennt aukizt til mikilla rnuna, og þá stefnt að því að auka sem mest afurðamagn ær- innar. Ekki er því að leyna, að sauðfjár- rækt er nú um sinn stundum talin gefa minna í aðra hönd en sumt annað, t. d. nautgriparækt. Telja sumir, að gallar á verðlagningu eigi þar sök á. Hitt er víst, því að það sýnir reynsla liðinna alda, að hægt var að fjölga fénu ört, ef vcl áraði. Og enn mun það gefa góða raun, ef mönnum auðnast að finna og nota aðferðir, sem gera það kleift, að tryggja sauðfénu nægilega öruggt og ódýrt vetrar- fóður, nriðað við gæði, þegar þess er þörf. Þeir, sem trú hafa á nytsemi sauð- fjárstofnsins, munu gleðjast yfir stækkun hans á ný, og ekki eingöngu vegna nyt- seminnar, heldur einnig vegna þess, að öllum kynslóðum, sem byggt hafa sveitir þessa lands, hefir þótt vænt urn sauð- kindina, og að erfitt er að sætta sig við þá hugsun, að landið og þjóðin geti án hennar verið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.