Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1963, Síða 95

Andvari - 01.10.1963, Síða 95
ANDVARI DANSKAR BÓKMENNTIR 1940—1960 213 skáldin Soya (1896) og Kjeld Abell (1901 —61). AfstaSa þeirra allra markast af trú- lcysi, ýmist líffræðilegri þróunarkenningu Johs. V. Jensens eða þjóðfélagsþróunar- kenningu Martin Andersens Nex0. Upphaf heimsstyrjaldarinnar um 1940 olli aldahvörfum meðal hinria yngri manna. Það varð skyndilega ljóst, að í hfsskoðun hinnar cldri kynslóðar og af- stöðu hennar til mannsins hafði ekki verið tekið tillit til mjög veigamikilla atriða. Það hlutu að vera önnur og sterkari nei- kvæð öfl til í mannlegu eðli en þau, sem framþróunarkenningin og marxisminn höfðu viðurkennt. í manninum var til cinhvers konar niðurrifsafl, sem á mæltu máli mátti kalla hið illa, og Jretta dró at- hyglina að kenningu kristninnar um syndafallið. Með skáldum þeim, sem nú voru nefnd, gctum við því ineð réttu sagt til eins kon- ar bráðabirgða, að ljúki tímabili því, sem hófst með Georg Brandes, og það er því öldungis réttmætt að telja nýtt bók- menntatímabil hcfjast um 1940. Með þessu er vitanlega ekki sagt, að ungu mennirnir séu alls ckki tcngdir þriðja og fjórða tug aldarinnar, því að við hlið hins áðurnefnda hóps raunsæisskálda, voru til mörg önnur skáld, sem ekki fylgdu neinni samciginlcgri stefnu, en höfðu allir það einkenni að láta sér fátt um kröfu Brandesar um þátttöku listarinnar í málefnum dagsins. Sumir þeirra eru efa- semdamenn, aðrir hafa greinilega trú- rænan, stundum kristilegan lífsskilning. Meðal efasemdamannanna eru jérgert Nielsen (1902 -45), Leek Fischer (1904 —56) og Knud Sfinderby (1909), cn Kar- en Blixen (f. 1885, skrifaði aðalverk sín cftir 1935), Nis Petersen (1897—1943) og leikritaskáldið Kaj Munk (1898— 1944) eru saman um hugsælcgan mann- skilning á trúrænum grundvelli. Báðir þessir rithöfundahópar áttu sinn verulcga þátt i framvindu bókmenntanna á tíma- bilinu 1940—60. Þróunarferill ungu skáldanna eftir 1940 hefur sem sé oft verið sá, að þeir hafa byrjað sem efa- semdamenn, en smám saman hafa þeir nálgazt hugsælega eða trúræna lífsskoðun, og þetta birtist meðal annars í hinum mikla áhuga þeirra á Blixen og Nis Peter- sen og heimspekingunum Stíren Kierke- gaard og Vilhelm Grönbecli. En af hverju byrjuðu þeir sem efa- scmdamcnn? Afhjúpun stríðsins á skcpnu skap mannsins lamaði stórlega traust manna á skynsemistrúnni og þá einnig trú framþróunarkenningarinnar á jafna og áframhaldandi þróun. En einmitt sú trú hafði hvatt manninn fram til hinn- ar löngu ferðar til fyrirheitna landsins, sem vitanlega hlaut að vera til hér á jörð, það er að segja jafnt og þétt batnandi veröld, þar sem hægt er að fullnægja öll- um efnislegum kröfum og enginn skort- ur er til á neinu og þar sem maðurinn getur því ekki komizt hjá að vera ham- ingjusamur. Og svo vissir höfðu menn verið í sinni sök, að þeir höfðu með jafn- aðargeði skilið allan annan hugsjónafar- angur eftir, og því valt öll þessi spila- borg um koll, þegar menn horfðust í augu við eyðileggingaröfl stríðsins. Afleiðing þessa hugsjónaskipbrots var sú, að maÖurinn stóð aftur uppi allslaus, cnda má segja að þaÖ sé megineinkenni á menningu vorra tíma. Maðurinn á sér ekki lengur neitt hellubjarg þar sem krist- indómurinn er, cn á hinn bóginn hcfur hann ekki getað fundið neina trú í stað- inn fyrir hann. Fyrri menn fundu skýr- inguna á líli sínu í trúnni og gátu því litið á jafnvel liið ægilegasta stríð sem birtingu hinna illu afla í mannshugan- um, þeirra sem í biblíunni íklæðast gervi Mins Illa. Þetta gerði þeim kleift að gera greinarmun góðs og ills og skilja hugtök eins og ábyrgÖ, sök, sáluhjálp,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.