Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1993, Page 29

Andvari - 01.01.1993, Page 29
ANDVARI PÁLMI JÓNSSON 27 Póstverslanir, sem gefa út vörulista svipaðan þeim, sem hér er á ferðinni, hafa rutt sér mjög til rúms erlendis á undanförnum árum, og fara vinsældir þeirra stöðugt vaxandi. Fólk hefur tekið fegins hendi þeim þægindum, sem verslunarfyrirkomulag þetta veitir, og metið að verðleikum þann ávinning, sem fólginn er í því, að í listunum eru flestar vörur seldar á stórum lægra verði en almennt gerist. Stafar það, auk hagkvæmra innkaupa, meðal annars af geysimikilli umsetningu þessara fyrirtækja og tiltölulega lágum rekstrar- kostnaði. Þá kom fram, að lágmarksvörupöntun væri 100 krónur, en ef pantað væri fyrir þúsund krónur eða meira, greiddi Hagkaup flutningskostn- að. Vörur væru aðeins seldar gegn staðgreiðslu. í vörulistunum kenndi margra grasa. Þar voru sumarkjólar á 650 krónur, poplín- kápur fyrir konur á 910 krónur, tveggja lása nælongalli fyrir smá- krakka á 555 krónur, ferðaritvélar á 2.712 krónur, kaststengur fyrir veiðimenn á 381,30 krónur, sokkabandabelti á 75 krónur, nælonsokk- ar á 51,90 krónur, ullarjakkaföt fyrir karlmenn á 1.975 krónur, tveggja manna tjöld á 780 krónur, raðstólar úr birki á 445 krónur, 100 grömm af brilljantín-hárkremi á 14 krónur, gólfteppi á 500 krón- ur á fermetra, heimilistæki frá Rafha og svo framvegis. Margir kaupmenn voru gramir Pálma fyrir að bjóða niður vörur fyrir sér, en almenningur tók Hagkaup strax mjög vel. Næstu árin færði fyrirtækið út kvíarnar.26 Árið 1964 hóf Hagkaup rekstur sauma- stofu í Bolholti, og voru birgðageymsla fyrirtækisins og póstverslunin líka þar til húsa. Einfaldur saumur var sendur út til húsmæðra. Þekktasta flíkin, sem saumastofa Hagkaups framleiddi, var Hag- kaupssloppurinn svonefndi, en hann var landsþekktur á sinni tíð. Pálma hafði tekist að ná í ódýrt efni í Þýskalandi og keypti mjög stóra sendingu; hefðu strangar hennar verið lagðir niður, hefðu þeir náð frá Reykjavík austur á Hellu. Þegar framleiðslu hagkaupsslopp- anna var hætt, höfðu selst á annað hundrað þúsund þeirra. Hagkaup opnaði aðra verslun árið 1964 í Lækjargötu 4, í sama húsi og Versl- unarmannafélag Reykjavíkur hafði verið stofnað 27. janúar 1891. Þar var um skeið rekin tískuverslunin Kyss Kyss, en síðar var þar aðal- lega seld venjuleg vefnaðarvara. Jafnframt var Hagkaupsverslunin í Eskihlíð rekin áfram af miklum krafti. Og árið 1966 var Pálmi Jóns- son í Hagkaup orðinn hæsti skattgreiðandi í Reykjavík, með 1.206.723 krónur í opinber gjöld.27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.