Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1993, Side 50

Andvari - 01.01.1993, Side 50
48 HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON ANDVARI ardag í samræmi við það til klukkan 16.70 Kaupmannasamtökin og Verslunarmannafélag Reykjavíkur snerust þegar hart gegn þessari breytingu. Þegar Hagkaup hafði opið í Skeifunni 15 fram yfir hádegi næsta laugardag, 8. október, kom lögregla á vettvang, og eftir klukkutíma fund með forráðamönnum Hagkaups var ákveðið að verða við tilmælum lögreglunnar um að loka versluninni.71 Sögðust Hagkaups- menn gera þetta í trausti þess, að úreltar reglur yrðu afnumdar. En þungt var í mörgum viðskiptavinum Hagkaups, sem þurftu að hverfa á braut úr Skeifunni vegna aðgerða lögreglunnar. „Hvers vegna eruð þið að loka?“ - kallaði einn viðskiptavinur til lögreglu- mannanna. „Þið eruð nú engum líkir!“ - gall við í öðrum. Davíð Oddsson borgarstjóri sagði af þessu tilefni opinberlega, að annað- hvort yrði að rýmka reglugerð um opnunartíma verslana eða afnema hana með öllu.72 Hann hafði einmitt, á meðan hann var ungur borg- arfulltrúi, beitt sér fyrir rýmri opnunartíma, en þá ekki fengið hljóm- grunn.73 Morgunblaðið tók einnig undir það í ritstjórnargreinum, að rýmka þyrfti opnunartíma verslana í Reykjavík, og taldi æskileg- ast, að kaupmenn og verslunarfólk hefðu sjálf forystu um það.74 DV leitaði álits borgarfulltrúa í Reykjavík á gildandi reglum um opn- unartíma verslana, og taldi aðeins einn þeirra, borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins, óþarfa að breyta reglugerð um opnunartíma versl- ana.75 Nú gerðist það, að þessi deila færðist norður til Akureyrar. A sjö- unda áratug höfðu Hagkaupsmenn haft þann sið að fara um landið og selja ódýra vöru, og mæltist það vel fyrir. Markaður, sem þeir stofnuðu til rétt fyrir utan Akureyri árið 1967, gekk svo vel, að hon- um var ekki lokað. Árið 1975 stækkaði verslunin og fluttist í betra húsnæði við Tryggvagötu. Enn færði Hagkaup út kvíarnar á Akur- eyri árið 1980, er fyrirtækið opnaði 1.200 fermetra stórmarkað við Norðurgötu. Hafði kostað nokkurt þref að fá verslunarleyfi þar, því að húsnæðið hafði upphaflega verið ætlað fyrir bifreiðaverkstæði. í stórmarkaðnum á Akureyri var vara boðin á sama verði og í Reykja- vík, en það var talsvert lægra en áður hafði tíðkast á Akureyri.76 Því má segja, að Pálmi hafi boðið sannkallaða „Reykjavíkurprísa“ á Ak- ureyri, og áttfaldaðist verslun við Hagkaup þar fyrsta kastið. í októ- ber 1983 samþykkti bæjarstjórn Akureyrar rýmkaðan opnunartíma verslana vegna tilmæla Hagkaups á Akureyri, og staðfesti Fé-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.