Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1993, Page 144

Andvari - 01.01.1993, Page 144
142 P. M. MITCHELL ANDVARI sjálfri sér ekki hlutlægni, og um leið skortir hana þann anda sem auðkennir aðferð Gr0nbechs. Gr0nbech neytir nýrra orða, eða a.m.k. óvenjulegra, og nýrra hugtaka; vafalaust vegna þess að hann vill ekki nota orð sem áður hefur verið íþyngt af aukamerkingum og hugtengslum sem gætu leitt lesendur á villigötur. Svo vekja nýju orðin líka athygli okkar. Við verðum að lesa þetta allt; get- um ekki leyft okkur að stikla yfirum orð og setningar; og við sjáum ekki með vissu fyrir, hvað hann ætlar að segja. Einnig það, að Gr0nbech átti það til að renna nýjum merkingum í alþekkt orð, rekur til gaumgæfilegri lestrar. Pað hlýtur að hafa verið sannfæring Gr0nbechs að heimurinn sem mað- urinn hrærist í væri mótaður af metafýsískri hugsun, andlegri spekt, nefni- lega að það verulegasta og mest verða fyrir manninn væri það sem hann trúir á, og að það sem hann trúir væri ekki það efnisheimslega. Ætla má að það sé vegna þessa, að Gr0nbech efaðist sterklega um gildi fornleifafræði sem leiðar til hlutlægrar sönnunar. Mörgum árum síðar, í Hellas I, (1934) gerði hann skýra grein fyrir efahygli sinni gagnvart þessari fræðigrein: „Það er hægt að læra margt um fólk með því að horfa á diskana sem það át af, en af því verður fátt ráðið um það, um hvað þetta fólk var að hugsa á máltíð- um. Þótt diskarnir séu ríkulega prýddir, jafnvel með myndum, færa þeir okkur ekki nær fólkinu, meðan við höfum enga ritmálsleifð frá því til þess að túlka myndskreytingarnar. Þetta á við um allt sem fornleifafræðin leiðir fram: hús og hof, vopn og menn, tæki og goðamyndir; í slíkum hlutum finn- um við ómetanlegt efni til þess að gera textana skiljanlega; en án beinnar tjáningar úr huga fólksins eru og verða þessir hlutir gátur“ (bls. 7). Grpnbech efast ekki um kraftinn í frumspekilegu hugtökunum, né um mikilvægi trúarinnar; öðru nær, hann er sannfærður um að þetta sé mesta aflið í lífinu. Það gildir einu, þótt þessi trúarbrögð séu skálduð. Við veitum því athygli, að Grpnbech neitar því ekki, að það yfirnáttúrlega kunni að vera til. En trúarbrögð geta blátt áfram verið túlkun mannsins á því yfir- náttúrlega í hverri nútíð. Eins og Grpnbech sagði 1912 í ræðu sem hann hélt til heiðurs Vilhelm Thomsen („Staða vísinda í þjóðlífinu“, pr. í Kampen om Mennesket, 1930, bls. 38): „Allt er satt, en sannleikurinn er bara meiri en hitt og þetta, því að trú er lífið sjálft í æðsta veldi sínu“. Þessi sannfæring kemur fram hjá Grpnbech nokkrum sinnum í verkum hans síðar. Önnur athugasemd í sömu ræðu (sama rit, bls. 34) varpar ljósi á aðferð- ina og hugmyndina að baki Þjóðstofns vors: „Eins víst og það að allur skilningur er endursköpun er og víst, að öll vísindaleg leit safnast saman í þeirri stóru einingu, að allt er forsendur okkar sjálfra“. Og enn segir Gr0n- bech í sömu ræðu (sama rit, bls. 23), að hlutlægni útiloki ekki skáldskap, öðru nær: „Við verðum að gangast upp í athöfn okkar, verða eitt með
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.