Andvari - 01.01.1993, Side 149
ANDVARI
LEITANDI SÁLAR
147
óskepisástand beinir sálinni ögrandi ofan í myrkur“ (í tfmaritinu Edda
IV[1915], bls. 45).
Enda þótt varla verði sagt að hann hafi skilgreint hugtakið, talaði Gr0n-
bech gjarna um tilvist sálarinnar og um grundvallarþýðingu hennar í lífi
einstaklings og samfélags. Bæði sem einstaklingur með lifandi huga við líf-
ið og sem trúarsögufræðingur hafði hann áhuga á að rannsaka, hvaða hug-
myndir ólíkar þjóðir gera sér um sálina. Hann vildi ekki lýsa trú sundur-
leitra þjóða og menningar með félagsvísindalegum og mannfræðilegum
hugtökum, heldur vildi hann sjálfur með eigin hætti greina veru sálarinnar
hjá því fólki sem hann athugaði, og komast að því, að hverju leyti þetta
fólk skildi sjálft sál sína. Hann spurði þess, hvernig „sálin“ hefði verið sam-
sett á fyrri tíð og við aðrar aðstæður. Hann leggur áherzlu á, að sá sem hafi
trúað á fornnorræna guði hafi gengið veg dulrænnar (mystískrar) helgunar/
tileinkunar. Heiðnir menn á Norðurlöndum „unnu það afrek að verða nýtt
fólk og endurskapa sig sjálfa í trúarskiptunum“ (bls. 29). Pað að íslandi
varð svo greiðlega snúið til kristins dóms verður ekki skýrt nema með því,
að lífið var ekki líf hvers eins. Og sú trú sem varð upp úr sinnaskiptunum á
Norðurlöndum bar sitt eigið mót, til dæmis um það, að menn drukku minni
Krists og heilagra. Hið dultrúarlega eða mystíkin, sú sem var fyrir í fornu
norrænu trúnni, kom kristninni að gagni, enda þótt Grpnbech staðhæfi
einnig: „Sá straumur af mystík sem hefur verið að slöngvast að og frá um
síðustu þúsundir ára er ekki það sama og nokkur kirkja eða trúarbrögð“
(bls. 60).
ÆVIATRIÐI OG RIT3
Vilhelm Peter Gr0nbech fæddist í Allinge á Borgundarhólmi 14. júní 1873. Hann lézt 21.
apríl 1948.
Ritverkið Vor Folkeœt i Oldtiden I-IV kom þannig út:
1909 Lykkemand og Niding (I),
1912 Midgárd og Menneskelivet (II),
1912 Hellighed og Helligdom (III),
1912 Menneskelivet og Guderne (IV).
1931 kom nokkuð breytt útgáfa á ensku, The Culture of the Teutons í þrem bindum. Á
grunni ensku þýðingarinnar kom 1955 önnur útgáfa á dönsku í tveimur bindum.
1937-39 birtist þýzk þýðing, Kultur und Religion der Germanen, I-II. 1961 kom sú bók í
sjöttu útgáfu.
Nokkur önnur æviatriði og rit er einnig gott til kynningar að setja upp í töflu í tímaröð.
Vísast til slíkrar töflu í bók Mitchells, bls. 250-252, en hann vitnar til Pouls Holst, Vilhelm
Gr0nbech. En Bibliografi (Kaupmannahöfn, 1948).
1890 Grpnbech stúdent.