Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1993, Side 153

Andvari - 01.01.1993, Side 153
ANDVARI TVEIM TUNGUM 151 þegar honum tókst best upp, svo sem í nornaþulunni frægu sem hefst á orðunum „Meðan gyllir máni höf,/ maurinn lýsir rakan svörð,/ haugaeldur hlær á gröf,/ hrælog sveipa mýrarjörð,“ o.s.frv. þar sem þrúðgur galdur stælts stuðlamáls glumdi í eyrum þess sem las, svo hárin risu á höfði hans. Þetta mega kallast krókaleiðir að því efni sem ætlunin er að gera nokkur skil hér, en það er í fyrsta lagi Eyðilandið (The Waste Land) eftir T. S. El- iot í þýðingu Sverris Hólmarssonar, sem kom út hjá Iðunni 1992, og Útlegð (Exil) og fleiri verk eftir Saint-John Perse í þýðingu Sigfúsar Daðasonar sem komu út í bók hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi 1993. Þessar bækur eiga það ekki einungis sameiginlegt að vera „tvítyngdar“, þar sem frum- texti er prentaður með þýðingunni, heldur fylgja þeim báðum einnig grein- argóðir eftirmálar og skýringar. Þar fyrir utan er um tvö höfuðskáld þessar- ar aldar að ræða, annan á enska tungu en hinn á franska, og ættu þessar bækur því að vekja forvitni landsmanna, svo ekki sé meira sagt. Á því hef- ur að vísu ekki mikið borið fram að þessu, og trúlega er koma þessara bóka á fárra vitorði, og mætti spyrja hverju það sætti meðal bókmenntaþjóðar. í raun réttri væri þó miklu nær að spyrja hvers vegna þessi skáld hafi ekki verið á ferðinni hér miklu fyrr, sé haft í huga að hér er um mikla áhrifa- valda í bókmenntum þessarar aldar að ræða og raunar ekki neina nýliða í skáldskap þar sem báðir eru fæddir fyrir meir en öld, Saint-John Perse árið 1887 en Eliot árið 1888. Bæði verkin eru frá fyrri hluta þessarar aldar og hafa haft ómæld áhrif á eftirkomendur, einkum Eyðilandið. Áður hafa að vísu komið eftir þessa höfunda brot úr verkum í íslenskri þýðingu, en það að heil kvæði eftir þá hafi ekki borist hingað fyrr en nú undir aldarlok vek- ur vissulega spurningar um stöðu okkar íslendinga gagnvart menningu um- heimsins. Oft er eins og við séum í litlum takti við aðrar Evrópuþjóðir í þeim efnum, og hefði til að mynda Eyðilandið borist hingað skömmu eftir að það var ort, eða á þriðja áratugnum, þá hefði það vægast sagt orðið harla hjáróma við þá nýrómantísku ljóðagerð sem hér var mest í tísku á ár- unum milli stríða, meðan þjóðin fagnaði enn fengnu sjálfstæði og skáldin svifu um loftin blá á purpuraskýjum draumanna eða reikuðu um Austur- stræti í leiðslu líkt og þau væru á Ódáinsvöllum. Sú rómantík sveif raunar enn yfir vötnunum á kreppuáratugnum, þótt draumar manna beindust þá meir í aðra og samfélagslegri átt. Það þurfti heimsstyrjöldina síðari og þær breytingar á þjóðfélagi og lífs- háttum er fylgdu í kjölfar hennar til að hér sköpuðust móttökuskilyrði fyrir Ijóðlist af því tagi er Eliot og hans mátar höfðu uppá að bjóða. Á grund- velli stríðsgróðans var nú tekið til við nýsköpun á öllum sviðum, og sú flóð- bylgja erlendra áhrifa sem þá reið yfir hlaut að kalla á endurskoðun og uppgjör við gömul gildi og að skipta þjóðinni niður í tvo ef ekki þrjá hópa í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.