Andvari - 01.01.2007, Page 101
hjalti hugason
Að endurskapa einstakling
Um œvisagnaritun með sérstakri hliðsjón afsögu
Matthíasar Jochumssonar
Inngangur
Síðastliðin fimmtán ár eða svo hafa verið tími hinna „stóru ævisagna“.
Sögur þær sem hér er átt við hafa verið „stórar" í tvennum skilningi. Þær
hafa fjallað í löngu máli um einstaklinga sem hafa verið fyrirferðarmiklir
1 samtíð sinni, fólk sem kalla má stórmenni í einhverri merkingu þess orðs.
Guðjón Friðriksson er sá sem lagt hefur mest af mörkum í þessu sambandi
uieð sögu Jónasar Jónssonar frá Hriflu (þrjú bindi 1991-1993), Einars
Henediktssonar (þrjú bindi 1997-2000), Jóns Sigurðssonar (tvö bindi 2002
°g 2003) og loks Hannesar Hafstein (eitt bindi 2005). Til þessa bókaflokks
einnig telja sögu Stefaníu Guðmundsdóttur leikkonu (1997) eftir Jón
^iðar Jónsson, bók Páls Valssonar um Jónas Hallgrímsson (1999), ævisögu
Steins Steinarr í tveimur bindum (2000 og 2001) eftir Gylfa Gröndal, tveggja
binda verk Viðars Hreinssonar um Stephan G. Stephansson (2002 og 2003),
ævisögur Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur um Björgu C. Þorláksson (2001)
°g Olafíu Jóhannsdóttur (2006), hið umdeilda verk Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar um Halldór Laxness (þrjú bindi 2003-2005) en einnig rit
Halldórs Guðmundssonar um Laxness (2004), sem og rit hans um Þórberg
Þórðarson og Gunnar Gunnarsson, Skáldalíf (2006). Er þá ótalin ævisaga
bórunnar Erlu Valdimarsdóttur um Matthías Jochumsson, Upp á Sigurhœðir
(2006), en að henni verður vikið sérstaklega síðar í þessari grein.
Þær ævisögur sem hér eru taldar eiga það sameiginlegt að hafa staðið upp
Ur flóðinu árið sem þær komu út. Þær vöktu flestar ef ekki allar verulega
umræðu, sumar ollu deilum og eitt verkið kom af stað málaferlum. Margar
Þeirra voru tilnefndar til fslensku bókmenntaverðlaunanna. Höfundar sumra
hrepptu þann heiður en aðrir hefðu einnig verið vel að honum komnir. Það
fyrirbæri sem hér kallast „stór ævisaga" hefur greinilega unnið sér þann sess
jrieð tilliti til Bókmenntaverðlaunanna að óumdeilt virðist að slík rit eigi
heima á lista yfir tilnefnd verk hverju sinni og að erfitt reynist að sniðganga
Pau við sjálfa verðlaunaveitinguna.