Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2007, Page 167

Andvari - 01.01.2007, Page 167
ANDVARI FÁTÆKT OG ÓJÖFNUÐUR 165 en ekki samkvæmt neinum réttlætislögmálum. En hvernig ætti að bregðast við slíkum vanda? Hegel svaraði: Þegar lífskjörum fjöldans tekur að hnigna, þá er í fyrsta lagi unnt að leggja kostnaðinn af því að halda uppi þeim kjörum, sem hann hefur vanist, á herðar þeirra, sem meira mega sín. Einnig er hugsanlegt, að hann þiggi fjárhagsaðstoð frá öðrum aðilum, sem gengið geta í digra sjóði, svo sem líknarfélögum, klaustrum og öðrum samtökum.4 Þetta hafði að vísu einnig þau óæskilegu áhrif að dómi Hegels, að menn tækju að hugsa um sjálfa sig sem betlara, þar sem þeir þægju ölmusu í stað launa. Annar möguleiki væri, að ríkið héldi uppi atvinnubótavinnu. Sá hængur væri á, að offramboð væri á markaðnum, svo að það yki á vandann í stað þess að minnka hann. (Um þetta hafði Hegel svipaðar hugmyndir og John Maynard Keynes lávarður síðar.) Hvað sem því líður, sá Hegel fyrir velferðarríkið, sem vísir myndaðist að í lok nítjándu aldar, en tók út þroska á hinni tuttugustu. Upphafsmaður þess hefur löngum verið talinn þýski járnkanslarinn Otto von Bismarck, sem beitti sér fyrir almannatryggingum um og eftir 1880 í því skyni að laða fylgi frá flokki jafnaðarmanna. Helst minnir greining Hegels þó á boðskap sænskra jafnaðarmanna á fyrri hluta tuttugustu aldar.5 Þeir töldu, að ríkið yrði að búa þegnum sínum afkomuöryggi. Markaðurinn væri und- irorpinn sveiflum, sem reyna ætti að jafna með opinberum afskiptum. Ríkið skyldi vera fólki heimili, „folkhemmet,“ eins og leiðtogi jafnaðarmanna, Per Albin Hansson, orðaði það 1928.6 Jafnaðarmenn sátu samfellt í ríkisstjórn í Svíþjóð frá 1932 til 1976 og hrintu þá hugmyndum sínum í framkvæmd. Allir Svíar öðluðust rétt til ellilífeyris frá ríkinu, þegar þeir höfðu náð 67 ára aldri, óháð fyrra framlagi og eignum eða tekjum. Skipulagðar voru slysatryggingar og sjúkratryggingar hins opinbera, en atvinnuleysistryggingar voru á vegum verkalýðshreyfingarinnar. Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga við fólk, sem orðið hafði fyrir skakkaföllum, var einnig aukin. Seinna var stofnaður lífeyrissjóð- ur allra Svía með skylduaðild, en lífeyrir úr honum var tengdur fyrri launum, og kom hann til viðbótar hinum opinbera ellilífeyri.7 Tæpum tvö hundruð árum eftir að Réttarspeki Hegels kom út, erum við reynslunni ríkari. Hegel ofmat mátt ríkisins til að skapa samkennd og tryggja nauðsynlega aðlögun og taumhald. Þótt hann væri djúpsær hugsuður, hafði hann enga haldbæra kenningu um, hvernig ríkið starfar í raun og veru. Það er ekki málfundafélag, þar sem menn með göfugar hugsjónir skiptast á skoðunum. Hætt er við því, að þar renni velferðaraðstoð ekki til þeirra, sem helst þurfa hennar með, heldur hinna, sem hafa mest áhrif á valdhafa. Millifærslurnar verða frá hagsmunahópum, sem eru fjölmennir, óskipulagð- ir og lágværir, til dæmis skattgreiðendur og neytendur, til hinna, sem eru fámennir, skipulagðir og háværir, til dæmis njótendur margvíslegra fríðinda. Efnafólk, sem sækir reglulega leikhús, fær aðstoð ekki síður en langveik börn.8
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.