Andvari - 01.01.1956, Síða 76
72
Þorkell Jóhannesson
andvari
ritgerð væri sjálfsagt misbrestasöm og kafnaði hálfgert undir
nafni, skyldi þessi titill hennar vera mér varanleg hvöt til þess
að gera efninu fyllri skil, þótt síðar yrði. Hér var heitstrenging
lalin, sem mér því miður hefir enn ekki tekizt að efna og tekst
ef til vill aldrei. Samt hefir llest, sem ég liefi ritað um söguleg
elni síðan, borið þess meiri eða minni merki, hversu föstum tök-
um þctta fyrsta fræðilega viðfangsefni tók mig, en síðan eru nú
liðin rúm 30 ár.
Og hvað felst svo í þessu orði: Hagsaga? Að mínum skilningi
felst í því vitneskja um atvinnuhætti þjóðarinnar og atvinnuhagi
á öllum öldum, og allt sem ljósi gæti varpað á þetta. Hér er um
að ræða sögu höfuðatvinnuveganna, landbúnaðar og sjávarútvegs,
gildi þeirra fyrir þjóðarbúið á hverjum tíma, skipulagning þeirra
að lögum og venju, vinnubrögð og tækni í starfsgreinum, vöru-
framleiðslu og vöruverkun, þróun, hnignun og viðreisn. En öll
miðar rannsóknin á þessum atriðum að því að leiða í ljós fjár-
hagi þjóðarinnar á hverjum tíma. Elér kernur enn rnargt til
greina: Skipting landsins, eignarráð og verðgildi jarða á ýmsum
tímum. Arferði til lands og sjávar skiptir miklu máli. Þá rná
eigi gleyrna verzluninni og áhrifum hennar til ills eða góðs á
efnahag í landinu. — Pólitíska sagan verður óhjákvæmilega þátt-
ur þessarar sögu og þar með kirkjusagan, einkum saga kaþólsku
kirkjunnar hér á landi, en hér er samt aðeins um að ræða eina
hjálpargrein hagsögunnar, líkt og hagsagan er og verður nauð-
synleg hjálpargrein pólitísku sögunnar, ef vel á að fara. Hér á
ég við vísindalega rannsókn á báðum þessum skyldu sviðum. En
þegar að því kemur að rita þjóðarsöguna með tilliti til venju-
legra lesenda, til fróðleiks og skemmtunar, ef svo mætti segja,
fer að minni ætlan bezt á því að vefa fræði þessi saman í eðli-
legu samhengi og í réttum hlutföllunr við gildi hvors tveggja,
þar sem stefnt er að sem gleggstri og sannastri mynd af líli
þjóðarinnar og örlögum öld frá öld.
I kafla þeim, sem hér fer á eftir, verður rætt um jarðeign
og landverð hér á landi fram um lok 16. aldar. Hér er um