Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1956, Page 111

Andvari - 01.01.1956, Page 111
ANDVARI í varplandi 107 fara verður að því með allri gætni. Kollan er stórlát og fyrtin. Ef henni þykir sér í einhverju misboðið með hreiðurfærslunni, sezt hún ekki á það aftur, heldur á staðinn þar sem það áður var, og bíður þess sem verða vill. Þegar svo sjórinn flæðir undir hana, yfirgefur hún allt saman og siglir sinn sjó. Hitt er þó tíð- ara, að hún meti björgunarstarfið að verðleikum, setjist á hreiðrið eftir færsluna og inni sitt hlutverk af hendi eins og náttúran ætl- aðist til af henni í upphafi. — Þegar hreiður er fært, ríður á að taka hvorki úr því egg eða dún, því hvort tveggja ýtir undir koll- una að yfirgefa. Henni er sem sé ekkert um ránskap mannsins gefið, þó hún verði að sætta sig við hann að öllum jafnaði. — En sé vonlaust um alla björgun, er því bjargað á land sem bjargað verður. Og leitarmaðurinn skilur þá aðeins eftir eitt eða tvö egg í hreiðrinu og dúnhnoðra, sem kollan getur setið á, þangað til hún flýtur burt —. Æður, sem fer i sjóinn af nýjum eggjum, eða verður að yfir- gefa hreiður sitt af öðrum ástæðum snemma vors, verpur oftast aftur, en verður þá svo síðbúin með útungunina og ungauppeldið, að ungarnir munu sjaldnast verða langlífir. Hausthret og kaldur sjór verður þeim að bana. Og kollan siálf veslast oft upp úr hor og vesaldómi, eftir svo langa ásetu og dvöl á þurru landi. Sumir góðir varpbændur hafa því tekið upp á því að steypa undan þeim kollum, sem verpa eftir að 9—10 vikur eru af sumri. Af því hlýzt ekkert tjón fyrir varpið, en er góðverk gagnvart emstaklingnum, sem fyrir því verður. — Leitað er allan daginn, ein eyjan af annarri, þar til kvöld Cr komið og fólkið heldur heim, þreytt og þyrst eftir vel unnið ^agsverk. Og hafi dagurinn ekki enzt til að leita alla landar- eignina, þá er tekið til óspilltra málanna að morgni og þannig haldið áfram, þar til lokið hefur verið við leitina, þ. e. a. s. leituð llefur verið öll landareignin. Þannig eru farnar 4—5 leitir yfir varptímann. Eggin komu heim úr fyrstu og annarri leitinni. Dúnninn að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.