Menntamál - 01.12.1954, Qupperneq 34
68
MENNTAMÁL
69: Ríkisvaldið á að fyrirskipa strangari reglur um aga og um-
gengnisvenjur, setja löggjöf um útivist barna, skemmtanir o. s. frv.
77: Mestu skiptir í skólum framtíðar kristileg vakning, næmleiki
fyrir fegurð, háttprýði, átthagatryggð, heimilisrækni og starfsþrá.
Hugsunarhátturinn er a, fræðslan aftur b, c. ...
80: Mér virðist of lítið gert að því að þroska siðgæðishugmyndir
æskunnar og almenna siðfágun. Þá virðast skólarnir gera of lítið að
því að þroska viðhorf æskunnar gagnvart hvers konar vinnu.
84: (2) Trúaruppeldið frekar vanræktað en of ræktað. Félagsupp-
eldið er látið sitja á hakanum, en einstaklingshyggjan ofræktuð.
39: Leggja meiri rækt við hinar fornu dygðir: trúmennsku, skyldu-
rækni, iðjusemi, sparsemi, manndóm og sjálfstæði einstaklinga o. s. frv.
41: Mér finnst ekki lögð nægileg áherzla á góða og mikla kristin-
dómskennslu. En kristindómurinn er bjargið, sem allt þarf að byggj-
ast á, svo að líf einstaklinga og þjóða hrynji ekki til grunna. Aukin og
bætt kristindómskennsla er það, sem jrjóðin þarf nú mest í uppeldis-
málum.
48: Okkur skortir till'innanlega: reglusemi, skyldurækni, löghlýðni
og orðheldni.
49: Þessu er vandsvarað. Ég lield, að ég sé þess ekki megnugtir að
benda mér meiri mönnum á leið út úr ógöngunum. En ég held, að
þjóð vor væri liólpin, ef uppeldisstofnunum lieppnaðist að innræta æsk-
unni þennan einfalda sannleika: „Flver þjóð, sem í gæfu og gengi vili
búa, á guð sinn og land sitt skal trúa.“ Þetta virðist mér ætti að vera
einkunnarorð allra íslenzkra skóla. Þau ættu að vera greypt gullnu
letri yfir dyrum jreirra.
52: Siðrænt uppeldi iielur víða verið lagt á liilluna, en ég skal viður-
kenna, að slíkt uppeldi getur auðveldlega orðið kák og hégómi í hönd-
um óvalinna manna. Þekkingin er heldur ekki eins hagnýt og skyldi.
31: Nauðsynlegt er að brýna fyrir kennurum almennt að rækja ekki
miður uppeldis- en fræðslustarfið. Gefið sé út meira af lesefni handa
börnum, sem valið sé með sérstöku tilliti til jressa þáttar skólastarfsins,
auk handbóka kennara og nemenda um almenna siðfræði og hegðun.
ATHS. Einkennistölur sumra kennara, sem dami eru teliin hjá,
féllu niður af vangá. Höfundur og lesendur eru beðnir afsökunar á
því. Ritstj.
J