Menntamál - 01.12.1954, Page 106
140
MENNTAMÁL
Enn sem komið er hafa ráðin ekki rækt til fulls hið nýja
og mikilvæga hlutverk, sem þeim er ætlað um menntun
kennara. Samt er ljóst orðið, að þau hafa haft mikil
áhrif á starfsemi kennaraskólanna og einnig meðal starf-
andi kennara.
Tilrauna- og rannsóknarstarf þeirra, sem er nátengt
reglubundinni umsjón þeirra með menntun kennara, ber
sífellt betri árangur. Á þann hátt kynnast kennarar við
kennaraskóla rannsóknarstörfum eins og þau eru unnin
á vinnustofum háskólanna, og þeir verða færir um að
hefja tilraunastörf upp á eigin spýtur.
Tilraunaráðunum er stjórnað sameiginlega af fulltrú-
um frá viðkomandi háskóla, kennaraskólum og fræðslu-
ráði í umdæminu. Ráðið hefur bækistöð sína í bygging-
um háskólans, og allt starfslið vinnur þar að staðaldri.
— Kennaraskólarnir í umdæminu teljast hluti af ráðinu,
hlýta leiðsögu þess og eftirliti bæði um námsefni, kennslu-
tilhögun og próf nemenda, skólarnir eru þó engu að síð-
ur sjálfstæðar stofnanir í öllu, er lýtur að stjórn þeirra
og rekstri.
Tilraunaráð hinna einstöku umdæma eru algerlega sjálf-
stæðar stofnanir, en hafa engu að síður nokkurt sam-
starf sín í milli. í því skyni hafa þau komið á ráðstefn-
um, sem haldnar eru tvisvar eða þrisvar á hverju ári.
Skapa þær viðræðuvettvang fyrir hin margvíslegu sam-
eiginlegu vandamáli, og jafnframt er reynt að finna þá
lausn á nokkrum þeirra, sem allir geta sætt sig við. Slikar
niðurstöður eru samt sem áður ekki bindandi fyrir ein-
stök ráð.
Öll höfuðvandamál í sambandi við aðsókn nýsveina að
kennaraskólunum, menntun kennara svo og umsjón með
því, að nægilegt kennaralið sé til í landinu á hverjum
tíma, eru í höndum sérstakrar lögskipaðrar nefndar. Er
henni skylt að vera ráðgjafi menntamálaráðherra, ef
hann leitar álits hennar um ákveðin atriði. Ef ráðherra