Menntamál - 01.04.1967, Blaðsíða 8
2
MENNTAMÁL
DR. WOLFGANG EDELSTEIN:
Breyttir samfélagshættir og
hlutverk skólanna
Erindi flutl á móti Skólastjórafélags íslands
að Laugarvatni i ágúst 1966.
I.
Flestar kynslóðir á undan okkur skynjuðu samfélag sitt
að mestu kyrrstætt, þó ef til vill á örlítilli hreyfingu, hel/.t
niður á við. Fáeinar kynslóðir upplifðu samtíð sína vitandi
vits sem byltingaröld, svo sem Sallust á 1. öld f. Kr. burð eða
Tacitus síðar, Ulrich von Hutten á árdögum húmanisma
eða Thomas Mann á síðkveldi hans, bera vitni um. Og jafn-
vel þeir, sem skynjuðu breytingarnar mest, misstu aldrei
miðun sína við föst kennileiti á bakka straumsins.
Nú er af sem áður var. Á síðastliðnum 50 árum hafa meiri
breytingar gengið yfir mannkynið en nokkru sinni í sögu
þess, að undanskildum þeim firnum í árdaga, er ollu föstu
aðsetri mannkindarinnar eftir ármilljóna flakk á veiðilör
og eltingu við lífsviðurværið. Svo sem síðar mun þörf að
víkja orðum að, eru breytingar þær, sent eiga sér stað allt í
kringum okkur, ekki einskorðaðar við neinn þann vettvang,
sem óðar yrði gripinn tökum, mældur, stikaður, og föst
eyktamörk höfð til viðmiðunar. Vettvangur breytinganna
er fyrst og fremst maðurinn sjálfur með líkama og sál, lífs-
skilyrðum sínum öllum. Því fylgir, að saga hans, vinnu-
brögð, heimilishagir og stjórnarfar, sambúð hans við aðra,
vini og óvini, foreldra, maka og börn, einkum þó við sjálf-