Menntamál - 01.04.1967, Blaðsíða 42
36
MENNTAMÁL
Iðnbyltingin á íslandi (eða það sem kemur í hennar stað)
verður til þess, að fólkið flyzt á burtu úr sveitunum og tekur
upp allt annað vinnulag. Faðirinn vinnur að heiman, móð-
irin verður ein eftir heima, ef hún fer ekki að heiman til
vinnu. Barnið verður eftir heima, eða fer í skóla. Það sér
ekki lengur, hvað faðirinn hefst að. Vinna verður óhlut-
stætt hugtak. Heimilisfaðirinn hverfur brott á hverjum
morgni og kemur þreyttur aftur að kveldi, og í lok mánað-
arins koma peningarnir, sem fólkið lifir af. Framleiðslan er
óhlutstæð eins og vinnan, menn framleiða peninga, og af
þessum peningum lifa þeir, en ekki af dilkunum, sem þeir
hafa alið og slátra á haustin.
Móðirin elur önn fyrir fjölskyldu á víð og dreif. Þegar
hún ier til innkaupa á morgnana, sér barnið ekki fyrst í
stað, í hverju þetta verk er fólgið, livert samband þess er
við vinnu föðurins. Gamla fjölskyldu- og bændakerfið ein-
kenndist af því, að það var sjálfu sér nóg og allt var auð-
sæilegt, en nú verður allt ógagnsætt og torskilið, vegna þess
að þyngdarskaut athafna og starfa færist brott úr fjölskyld-
unni, yfir í samskipti við aðra. Öil framleiðsla byggist nú á
samskiptum milli óhlutstæðra aðila; vinnufélagar föðurins
eru utan sjónhrings bernskunnnar; kunningjakonur móður-
innar eru starflausar verur. Fæst orða þeirra, sem þessir að-
ilar fara með, eiga sér ótvíræða merkingu, sem upplýsist í
samsvörun verka. Barnið verður sjálft að tvinna saman hina
ólikustu þætti til þess að gera sér mynd af veröldinni.
Nú fyrst, á nýlega liðnu stigi sögunnar, færist lífsformið,
sem við nefnum æskuár, í þá félagslegu mynd, er við nefn-
um æsku. Þetta virðist fjarstæða í fyrstu. En börn bænda-
fjölskyldunnar eru ekki æskulýður. Þau standa hvert í sér-
stöku sambandi við foreldrana og sín á milli, þau eru ölI
ættingjar. Sambandið á nrilli þeirra er sterkara en allt sem
skilur. Þegar fólkið flyz.t á mölina og hin óhlutstæðu sam-
skipti fullorðinna við börnin og sín á milli taka við af fjöl-
skylduskipan allrar samveru, verður skyndilega fyrir barn-