Menntamál - 01.04.1967, Blaðsíða 22
16
MENNTAMÁL
einstaklinginn fram yfir kostnaðinn, sem hann ber af
skólagöngunni. Menntun er orðin skilyrði arðs bæði fyrir
einstaklinginn og heildina. Hinsvegar eru viðteknar regl-
ur um skipan skólanna, samband þeirra sín á milli, reglur
um og kröfur til námsefnavals og mat á námsárangri eftir
hefðum hins fyrra skipulags ekki í samræmi við fyrirkomu-
lag, sem býst við allt að þriðjungi hvers fæðingarárgangs
í háskólastigsmenntun. Skólarnir sem félagslegt tæki til að-
hæfingar ungu kynslóðarinnar að hlutverkum og skyldum
fullorðinna í síbreytilegum samfélagsheimi, er grundvall-
ast á afköstum einstaklinga og lieilda, hljóta að endurskoða
skipan sína. Og er þá komið aftur að upphafi Jæssa máls.
Ef skóli á að opna framtíðina fyrir ungri kynslóð, þ. e.
undirbúa hana undir sína félagslegu framtíð, verður hann
að meta framtíðina og hefðina jöfnum höndum, draga
ályktanir um framtíðina af þróuninni, haga námsefni og
kennslutilhögun í samræmi við það. Sé skólinn alþjóðar-
eign en ekki einnar stéttar, er óhjákvæmilegt að breyta
skilyrðum félagslega bundins árangurs með nýjum leiðum
í námsskipan, námshvatningu og námsmati, höfða til allra
gáfnaleiða, gáfnasviða og gáfnastiga, og sjá hlutverk skóla
fremur í eflingu hæfileikanna heldur en dómum yfir þeim.
Af þessu leiðir, að brýn nauðsyn er að endurskoða skóla-
starfið með tilliti til virkni Jiess. Sú endurskoðun krefst
rannsóknar á helztu þáttum skólahalds, ef breytingar eiga
að vera hnitmiðaðar og öllum í hag. Rannsóknarefnin eru
ærið viðfangsefni: Námsefni og kennsluaðferðir, notagildi
viðtekinna hugtaka eins og greind, hæfileikar og gáfur, skil-
yrði árangurs á nýrri skólaöld. Rannsóknir ætti að miða að
endurbótum á starfsháttum til samræmis við þá þekkingu,
sem áunnizt hefur, en til endurbóta Jrarf tilraunir. Mark-
vís þróun flókinna tækja og kerfa byggist á tilraunum að
sama skapi og þær byggjast á fræðilegum rannsóknum og
vísindalegum tilgátum. Tilrauna er og þörf til að efla ]:>ekk-
inguna sjálfa, svo í skólavísindum sem í öðrum greinum,