Menntamál - 01.04.1967, Blaðsíða 74
68
MENNTAMAL
fræðikennslunnar í gagnfræðaskólunum, því þessi takmark-
aði fjöldi kennara fyllir ekki nema lítið brot af þeirri þörf,
sem fyrir hendi er. Að auki bætist það við, að menntaskólar
og aðrir æðri skólar draga til sín töluverðan hluta þessara
kennaraefna. Kennaraskorturinn skapar okkur því sízt
minni vanda en skortur á kennslubókum og sérkennslu-
stofum.
7. Hvernig má endurskapa námsefni og kennsluaðferðir.
Fyrsta skrefið að bættri kennslu í eðlisfræði hlýtur að
vera ritun nýrra kennslubóka og sköpun nemendaæfinga.
Meðal ýmissa nágrannaþjóða okkar liefur verið unnið af
kappi að þessu verkefni síðasta áratuginn, og getum við lært
mikið af þeim, sem bezt hafa unnið að þessum málum. Vil
ég því segja hér nokkuð frá bandarísku átaki til að endur-
semja allt námsefni eðlisfræðinnar fyrir menntaskóla þar í
landi (high schools). Síðasta áratug fóru umræður um náms-
efni skóla sívaxandi í Bandaríkjunum, og voru flestir sam-
mála um, að mikilla breytinga væri þörf. Árangur þessara
umræðna var m. a., að stofnað var til nefndar, Physical
Science Study Committee (P.S.S.C.), til að vinna að því að
semja nýtt námsefni í eðlisfræði fyrir menntaskólana, sem
væri í samræmi við þáverandi þekkingu manna á efnisheim-
inum og þarfir þjóðfélags og einstaklinga. Á vegum þessarar
nefndar var rituð ný kennslubók í eðlisfræði ogsaminn fjöldi
einfaldra nemendaæfinga. Ennfremur voru gerðar nokkrar
kennslukvikmyndir. Kennsiubókin, æfingarnar og kvik-
myndirnar mynda eina heild, þar sem hver þáttur er látinn
gegna því hlutverki, sem lientar honum bezt. Að þessu
nýja námsefni stóðu um 70 menn: eðlisfræðingar (þar á með-
al nokkrir nóbelsverðlaunahafar), háskólakennarar, mennta-
skólakennarar o. fl. Meginsteliiu höfundanna er vel lýst með
eftirfarandi inngangsorðum, sem reyndar eru tekin úr for-
mála að hliðstæðri bandarískri kennslubók í líffræði(2):