Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Page 32
30
hann, ef eg man rétt. Er hún við allgóða heilsu.
Njóta þau hjón mikilla vinsælda og viröingar hæði
heima í héraði og víðar, í raun og veru allra er til
þeirra hafa þekt.
Jóhann Briem hefir verið lánsmaður. Sem vöggu-
gjöf þáði hann ágæta hæfileika, frábærlega góða
heilsu, og ærið glæsilega persónu. Hann var skap-
aður til að vera foringi og höfðingi, hver svo sem
lífsstaða hans hefði verið og hvar sem hann hefði
tekið sér bústað. Hann var svo lánsamur, að eignast
hina ágætustu konu, er aukið hefir á velfarnan
hans og sæmd í öllu. Þau hjón hafa og haft mikið
og gott barnalán. Samband fjölskyldun.nar allrar
og tengdafólksins hefir jafnan verið hið ástúðleg-
asta. Og þegar eg segi það um Jóhann Briem, að
hann liafi verið lánsmaður, þá má segja það sarna
um konu hans. Guðrún Briem hefir verið mjög lán-
söm kona og mikil blessun hefir jafnan fylgt störf-
um hennar, bæði innan heimilis og utan.
Grund í Eyjafirði hefir löngum verið höfðingja-
setur. Grund við íslendingafljót hefir verið það
einnig og engu síður. Þau mætu Briems hjón hafa
gert þann garð frægan. Mun það vera ósk vina
þeirra hinna mörgu, að samverutíð þeirra verði enn
drjúgum lengd, og að sæmd, heiður og lán fylgi þeim
jafnan.
Jóhann Bjarnason.