Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Síða 46
44
Svo bjó hún upp annyrkin útsýnisbreið,
með eldhugann táprík að renna.
Hér brosti við árvakur lífsgeisli á leið,
er lýsti yfir skyldurnar hennar.
Eina dóttur áttu :þau hjón; hún heitir Björg Indí-
ana og er gift manni af enskum ætturn. En 5 eru
synir þeirra Guðnýjar og Sigtiyggs: 1. Valdimar;
2. Jóhann; 3. Helgi; 4. Erlendur; 5. Hólmþór. Land-
ið seldu þau, en keyptu S.E. 33. Þar býr nú Sig-
tryggur með yngsta syni sínum.
Landnemi, lot 7.
Björn Abrahamsson. . . Faðir hans var Abraham
bóndi á Bakka í Borgarfirði eystra, Ólafssonar
bónda í Húsavík eystra, Hallgrímssonar á Þránd-
arstöðum, Þorgrímssonar á Skjöldólfsstöðum. -—
Móðir Ólafs í Húsavík var Þórunn, dóttir Ólafs lög-
réttumanns á Ketilsstöðum í Jökulsárhlíð, Péturs-
sonar eldra, Bjarnasonar sýslumanns á Bustarfelli,
Oddssonar. Móðir Björns Abrahamssonar var Sig-
urbjörg, dóttir Jóns bónda á Hólalandi, Árnasonar í
Gilsárvallahjáleigu.
Kona Björns er Björg Vilhelnu'na, dóttir Péturs
Vilhelms bónda í Eskifjaröarseli, Brandssonar, en
mcðir Bjargar var Þorbjörg Þorsteinsdóttir, henn-
ar móðir var Freygerður, dóttir Eyjólfs snikkara, ís-
felds, sem flestar dulskygnissögur hafa verið sagð-
ar af.
Björg ólst upp að miklu leyti hjá séra Jakobi
Benediktssyni á Hjaltastöðum. Árið 1874 giftist hún
Birni; bjuggu þau síðan á ýmsum stöðum. Jakob
heitir son þeirra, önnur börn áttu þau ekki. Með
honum fluttu þaiu til Vesturheims árið 1903, tóku
þá landið og fluttu á það ári síðar. Jakob býr nú
á landinu. Á fyrstu árum sínum þar bygði hann
eitt hið vandaðasta hús, er menn hafa þekt til hjá
frumbyggjara. Hússtæðið er eitt hið fegursta. —