Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Síða 52
50
ir verið brasað, og náð hefir það góðri herzlu, því
enn er hann sem ungur sé, — er þó kominn fast
að hálfsjötugu — og hefir hann þó ekki hlíft sér
við vinnu. tín merkilegt er um slíkan fjörgapa,
livað stiltur hann hefir getað verið, að gifta sig ekki
fyr en hálf fertugur. Hann hefir viijað sjá sér fyrir
góðum ráöahag, og ekki heldur fatast með það, því
góðan valdi hann sér kostinn. — Þau hjón hafa
nú selt eignir sínar í Árborg og flutt til Winnipeg
með fjölskylduna. Hafa þar nóga atvinnu.
Landnemi, lot 14.
Sigfús Sveinsson, — Um föðurætt hans hafa eng-
ar fengist upplýsingar. Um móðurnafn hans fékst
engin vissa. En það er fullyrt að hann hafi verið
dóttursonur Skúla prests í Múla í Aðalreykjadaí,
Tómassonar prests á Grenjaðarstað, iSkúlasonar.—
Sigfús kom sunnan frá Norður Dakota með Tryggva
Ingjaldssyni og tók þá þetta land. Hann var þá
nokkuð aidraður maður, og var hann á vegum
þeirra hjóna eftir það. Hann var kominn til Sess-
elju dóttur þeirra og naut hennar nákvæmu hjúkr-
unar síðustu árin og dó hjá henni. Hann var mað-
ur veglyndur hreinskilinn og látlaus. Hann kvænt-
ist aldrei né eignaðist barn.
Landnemi, lot 15.
Hans Níelsson. — Kona hans hét Hólmfríður
Guðmundsdóttir, ættuð úr Kelduhverfi. Friðrik hét
son þeirra, er verður hér getið. Með honum kom
Hans sunnan frá Hallson, N. D., og nam þetta land.
fleiri börn áttu þau hjón.
Landnemi, lot. 16.
Eiriíkur Jóhannsson. — Faðir hans var Jóhann
Steinn Jóhannsson, bóndi í Héraðsdal í Tungusveit
í Skagafirði. En móðir Eiríks var Ingibjörg Krist-
jánsdóttir frá Ljúfustöðum. — Kona Eiríks er Ólöf