Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Síða 60
Landnemi, lot 23.
Jón Jónsson. — Faðir hans var Jón bóndi í Gil-
haga í Skagafjarðardölum, Þorsteinsson bónda s.st.
Móðir Jóns Jónssonar var María Kristín Guðnnunds-
dóttir. Til Vesturheims flutti Jón með Jóni lækni
Jónassyni frá Saurbæ, þá 14 ára. Land þetta nam
Jón löngu seinna. Nefndi hann það Gilhaga. En
upplýsingar vanta hvert ár hann settist þar að. Jón
var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Kristín Stef-
ánsdóttir. En móðir hennar var Þorbjörg alsystir
Þorgríms á Akri. Þau eignuðust einn son er heitir
Marsel. Nú er hann rafurmagnsverkfræðingur,
suður í Iona, Arizona. Kristínu misti Jón eftir 6
ára sambúð. Tveim árum síðar giftist hann Odd-
nýju Sigfúsdóttur.
Jón er nú dáin fyrir nokkuð mörgum árum síðan.
Var hann þá búinn að viða að sér efni í vandað hús,
er hann þá ætlaði að byggja á næsta vori. Hann
var góður smiður, sem forfeður hans höfðu verið
hvor fram af öðrum. Kappgjarn var hann og ósér
hiífinn að verki. Hann kom hvívetna vel fram, og
var því mikils metinn af sveitungum sínum. Var
hinn mesi söknuður að honum, er hann lézt á bezta
aldursskeiði. Með seinni konu sinni átti hann einn
son er Jón heitir. Hann var skírður sama daginn og
faðir hans var jarðsettur.
Landnemi, lot 24.
Guðmundur N. Borgfjörð.—Faðir hans var Magn-
ús hreppstjóri á Hofstöðum í Álftaneshrepp í Mýra-
sýslu, Jónsson Magnússonar. En móðir hans var
Helga Þorsteinsdóttir frá Skildinganesi, Ingjalds-
sonar. Sigríður hét móðir Magnúsar hreppstjóra,
dóttir séra Jóns á Bergsstöðum í Svartárdal, Auð-
unssonar. Alsystir séi-a Jóns var Guðrún móðir
Jófríðar, móður Gísla sagnfræðings, Konráðsson-
ar. En sonur séra Jóns var Auðunn prestur á