Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Side 66
64
Dakota og tók þar land. En þaðan flutti hann tii
Mouse River og tók þar einnig land. Til Nýja ís-
lands flutti hann þaðan 1901. Fór alla þá leið á
hestbaki, þá kominn yfir áttrætt. Þótti slíkt benda
á frábæran kjark, hjá svo gömlum manni, að leggja
einn á Grána sínum út á jafn langa og ókunna
slóð. Tók hann þá réttinn á landinu bygði þar upp
og lifði þar á sumrin, þar til hann eignaðist það,
en á veturna var hann hjá Eiríki Jónssyni og konu
hans Vilborgu Stefánsdóttur, og var hann alveg
hjá þeim síðustu árin, og undi þar vel, sem hann
verið hefði hjá sínum nánustu skyldmennum. —
Með lögfestri erfðaskrá gaf hann Vilborgu landið
eftir sinn dag. — Við einn kunningja sinn lýsti
hann ánægju sinni yfir því, að geta nú sýnt þeim
göfugu hjónum þenna þakklætisvott, fyrir þeirra
velvilja gagnvart sér, er þau tóku sig að sér, alls-
laust örvasa gamalmenni, án þess að hyggja til
endurgjalds. Hjá þeim og börnum þeirra kveðst
hann hafa notið þeirrar alúðar og umhyggjusemi
er liann fengi aldrei fullþakkað. Hann lézt hjá
þeim í desember 1905, 85 ára.
Halldór Abrahamsson var orðlagður fjörmaður
og sjósóknari á sínum manndómsárum. Hann lærði
gull- og silfursmíði erlendis; vann þó mjiög lítið að
því, þótti það gera sér of miklar kyrstöður, en lagði
gerva hönd á margt annað, er hafði meira nota-
gildi. Halldór var kvæntur maður, en var þá ekkju-
maður, er hann kom til þessa lands. Með konu
sinni átti hann son er Einar hét, en sonur hans
heitir Björgvin, sem er búsettur í nánd við Wyn-
yard, Sask.
En landið geymir minningu Halldórs, það er enn
kent við hann og kallað Halldórsland. Það er eitt
allra bezta heyskaparlandið í norðaustur bygðinni.
Magnús Sigurðsson á Storð keypti það af Vilborgu.