Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Page 105
103
Siguröur Guðmundsson ættaður úr Húnavatnssýslu
vestanvert og Ingveldur Jósefsdóttir bónda á Auðun-
arstöðum í Víðidal, Tómassonar á Ásgeirsá. Móðir
Jósefs var Ljótunn Jónsdóttir nafnkunn merkis-
kona. Sigurður var kvæntur Sesselju dóttur Sigur-
bjarnar Jóhannessonar. (L.n. lot 44.) Þau bjuggu
fyrst á landi símu nokkur ár. Síðan fluttu þau vest-
ur til Mozart, Sask. Þar dó Sigurður 8. nóv. 1929
ungur og hraustur, 38 ára. Þau hjón eiguðust 5
börn.
Landnemi, N. W. J4 13.
Elías Elíasson. — Poreldrar hans voru Eh'as
Gissurarson bóndi á Syðri-Steinsmýri í Vestur-
Skaftafelssýslu og Gyðríður Þórhallsdóttir bónda á
Mörk á Síðu. Kona Elíasar er Guðbjörg dóttir Sæ-
mundar bónda í Hörgshlíð í Vatnsfjarðarsveit,
Gíslasonar Sæmundarsonar prests í Garpsdal. En
móðir hennar var María Jónsdóttir frá Galtahrygg.
En móðir Sæmundar í Hörgshlíð var Guðbjörg
Guðmundsdóttir, systir Ingibjargar móðir Torfa,
skólastjóra í Ólafsdal. Þau Elías og Guðbjörg giftu
sig í Winnipeg 1911 voru þá nýkomin að heiman.
Þau eiga tvo sonu, Gissur og Marino Sæmund, en
dóttir þeirra, Lára Elín. Þau hjón eru búsett '
Árborg, en bjuggu aldrei á landinu. En Elías vann
rétt á því í herþjónustu ríkisins. Þau eru ein hin
myndarlegustu hjón.
Landdnemi, N.E. J4 13.
Guðmundur Pálsson. — Hann er Skagfirðingur
að ætt. Foreldrar hans voru Páll Jónsson og Guð-
björg Guðmundsdóttir. Hann kom til þessa lands
er hann var á þriðja ári og var þá tekinn til fósturs
af Jóhanni Sigurðssyni og konu hans, Sigríði
Hannesdóttir á Gimli, og ólst upp hjá þeim til full-
orðins aldurs. Kona Guðmundar er Ragnheiðuv