Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Page 106
10-1
yngri, dóttir Sigurðar G uðniundssonar og Ingveldar
Jósefsdóttur Tómassonar. Ragnheiður eldri var gift
Kristjáni Þorsteinssyni gestgjafa að Hnausum.
Landenmi, N.E. J4 23.
Dagmar Þorláksson. — Hann var kvæntur Jósef-
ínu dóttur Sigurðar Guðmundssonar og Ingveldar
Jósefsdóttur. Hún er dáin og Dagmar er farinn af
landiitu.
Landnemi, suðurhelming 23.
Kristján Sigurður Magnússon. — Foreldrar hans
voru Pétur Jóhannesson Magnússonar og Kristjana
Benidiktsdóttir. (L.n., lot 35.) Kristján gekk í her-
þjónustuna á vígstöðvum Frakklands og hlaut fyrir
það annan landtökurétt. Hann er kvæntur Friðriku
dóttur Björns Erlindssonar bónda á Víðir. Friðrika
er hin mesta búkona, en Kristján hefir samið sig
meir að vélamenningunni en búskapnum. Nú hefir
hann keypt Bjarnastaðahlíð af Birni J. Björnsyni
sem áður er getið.
Landnemi, S.W. J4 24.
Óskar Guðmundur S. Guðmiindsson. — Foreldrar
hans voru. Sigurður Guðmundsson og Ingveldur
Jósefsdóttir. Þau voru búin að búa á þessu landi,
nokkuð mörg ár, ætluðu sér að taka annan rétt á
því, er þau höfðu áöur unnið sér rétt á landi, innan
sömu vébanda. En fengu ekki réttinn á því vegna
einhverra formgalla sem á því voru. En var þá heit-
ið því, að sonur þeirra fengi eignarrétt á því, þegar
liann hefði aldur til þess, án þess að vinna aðrar
skyldur en þær sem faöir hans var búinn að vinna
þar til landtökuréttar.
Guðmundur er kvæntur konu af enskum ættum,
er heitir Florence Kate. Er hann nú að kenna henni
“ástkæra, ylhýra málið’’ og mun honum takast það.
Þau hjón eru á ungum aldri og mjög myndarleg.