Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Side 110
108
er þaö hvervetna þess talandi vottur, að hann er trúr
sínum verkahring, látlaus í framkomu sinni sem bezt
má vera. Og þá kemur húsfreyjan til dyra einsog
hún er klædd frjálslega og tilgerðarlaus. Þeim hjón-
um liefir farnast liér vel, urðu þó fyrir talsverðu
tjóni er íbúðarhús þeirra brann, en nú er það bygt
upp aftur í öllu hentugra formi. Engin vandkvæði,
—fremur en annarstaðar, — telja þau á því að kom-
ast hér vel af, og eru hér mjög ánægð.
Landnemi, N.E. '/4 25.
Guðmundur Jakobsson. — Foreldrar hans voru
Jakob Guðmundsson og Sigurlaug Jósefsdóttir
(systir Jósefs Frímanns er nokkuð víða var kunn-
ur). Þa-u bjuggu á Snæringsstööum í Vatnsdal.
Kona hans er Una dóttir Gests Oddleifssonar og
Þóreyjar Stefándóttir í Haga í Geysisbygð. Börn
þeirra eru: 1. Klarens, 2. Gestur, 3. Jakobína, 4.
Bergrós, 5. Flórensa, 6. Bára, 7. Ernest Frímann, 8.
Guðmundur, 9. Óli Clifford, 10. Kristinn. — Þau hjón
fluttu til Árborgar þegar hún fór að byggjast, bjuggu
þar fá ár. Fluttu síðan á þetta heimilsréttarland
sitt, og bjuggu þar nokkur ár. Þegar Þorsteinn
Sveinssno flutti vestur til Argyle, keypti Guðmundur
Svalbarð, sem er lot 9, og flutti þangað. Síðan hefir
hann starfrækt landið af miklum dugnaði og að
öllu er þar vel um gengið, utan húss og innan. Á
öllu er þar hinn mesti hetjubragur.
Landnemi, N.W. %, 25.
Sigurður Eiríksson Hólm. — Faðir hans var Eirík-
ui' bóndi á Geirsstöðum á Mýrum í Hornafirði, Jóns-
son, s.st., Eiríkssonar á Rauðabergi. Móðir Sigurð-
ar var Guðný, dóttir Sigurðar bónda í Flatey á
Hornafirði og Guðrúnar yfirsetukonu, Vigfúsdóttur.
Guðný móðir Sigurðar var og orðlögð yfirsetukona
og tók á móti mesta fjölda barna, var þá komin fast
að áttræðu er hún tók við því seinasta.