Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Page 146
144
aðra hjálp var ekki að fá, og reyndist i því, sem öllu öðru
áræðinn, úrræðagóður og heppinn, og aldrei misheppnaðist
honum í þeim efnum. Það var þvi sízt að furða, þó hann
væri í áliti og ætti vinsældum að fagna, meðal þeirra, er
fáa úrkosti áttu — en ætíð vísa von um hjálp og úrræði
hjá honum. En aldrei heyrðist það á honum, að hann
miklaðist af þessu láni sínu. Honum fanst það bara — ail
in the days work — eins og Ameríkanir komast að orði —
einungis hversdagsstörf, sem ekkert er um að fást eða af
að láta. Höfðingi var hann heim að sækja, viðræðugóður
og glaðlyndur, og glæsimenni í búningi og allri framkomu.
svo að betur gat ekki. Hreinn í viðskiftum og drengur
hinn bezti. Eg hefi fáa alþýðumenn séð, eins höfðinglega og
hann, og þó færri höfðingja, sem kallaðir eru. Að sjá Bald-
vin einu sinni, var, að muna hann æfinlega, og þekkja úr
hvaða hópi manna sem var. Slíkir eru æfinlega fáir af
fjöldanum- M. J. B.