Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1928, Qupperneq 74
68
Alþýðan og bækurnar.
ÍÐUNN
ritanna, eða öllum þeirra, nauðalíkar greinar um sama
efni. Efalaust mætti koma öllu því, sem erindi á til al-
mennings, fyrir í einu tímariti, sem hefði helming les-
máls á við hin öll. Slíkt rit mundi fá fjölda kaupenda,
ef hin öll væru horfin, og þess vegna gæti það orðið
mjög ódýrt. Einhverjum útlending gæti dottið í hug, að
annmarkar væru á þessu, ritstjórarnir þyrftu á ritunum
að halda til að útbreiða skoðanir sínar og eitt rit mundi
marka of þröngan hring. En allir íslendingar vita, að
ritstjórunum kemur mæta vel saman um að vera hlut-
lausir í ritstjórninni. Flestir munu viðurkenna, að helm-
ingur alls þess, sem í ritunum birtist, mætti annað hvort
kyrt liggja, eða birtast í dagblöðum. 011 hafa þau nokk-
uð af »eyðufyllu« og greinum, sem fljótt fyrnast, en
slíkar greinar eiga betur heima í blöðunum.
Eigendurnir að »Vöku«, »Iðunni« og »Eimreiðinni«
ynnu þjóðþarfa verk, ef þeir legðu rit sín á fórnarstall-
inn og byðu »Skírni« reiturnar. Tryggja mætti frjálslyndi
með fjölmennri ritstjórn, og ættu ritstjórar hinna sáluðu
rita þar sæti fyrst um sinn. Eitt stórt tímarit, fylt fjörvi
fjögurra og tómum úrvalsgreinum, ætti að verða betra,
útbreiddara og ódýrara en öll hin. Væri þá engu slept,
en 20—30 krónur sparaðar árlega fyrir hvern einstak-
ling eða lestrarfélag, sem öll ritin kaupir nú.
Næst ber að geta þess, að bækur þarf að auglýsa
betur en gert er, þó ekki sé meir. Bóksalar ættu að sjá
um, að árlega kæmi út skrá yfir allar bækur ársins,
með sönnum skýringum, er treysta megi og engu aug-
lýsingaskrumi. Þar þarf að geta um verð bókanna,
stærð þeirra, efni og höfunda. Slík skrá væri almenn-
ingi til mikils hagræðis og mundi auka sölu góðra bóka
og þar með hjálpa til að gera þær ódýrari. Slík skrá