Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1928, Blaðsíða 89
IDUNN
Frádráttur.
83
getu nemenda sinna. Hugsum okkur tvo nemendur, eins
jafna að getu í einhverri námsgrein og tveir menn geta
orðið. Annar hefir alist upp á góðu heimili, er prúður,
vel til fara, hreinn og alla vega álitlegur. Hinn er illa
siðaður, illa hirtur og framkoman og útlitið þannig, að
það veldur alt megnum óþægindum. An þess, að kenn-
arinn vilji vera ranglátur, eða hafi hugmynd um það
sjálfur, veldur þessi mismunur nemendanna oft nokkrum
mismun á einkunnum, sem annars ættu að vera jafnar.
Til þess að ráða bót á þessu og öðrum ókostum
handahófsmælinga, hafa verið fundnar upp nýjar próf-
aðferðir. Hefi ég kynst þeim í Bandaríkjunum; en þær
eru notaðar meira og minna um allan hinn mentaða
heim. Til dæmis eru þær notaðar af kennurum víðsvegar
á Islandi. Fáar nýjungar munu hafa breiðst jafn óðfluga
út um heiminn. Fyrst mættu þær andúð, eins og flest-
allar nýjungar, en nú vilja kennarar ekki missa þær með
nokkru móti. I Bandaríkjunum eru þær komnar yfir til-
raunastigið, þ. e. flestir skólamenn þar munu á eitt
sáttir um, að þær taki langt fram því, er áður tíðkaðist
og hafi fullan tilverurétt. Enginn má þó skilja orð mín
svo, að mælitækin séu komin á fullkomnunarstig. Þvert
á móti býst ég við, að enginn endir verði á endurbót-
um þeirra, og mælingarnar verði því æ nákvæmari. I
þessu sambandi vil ég geta um litla tilraun, sem ég
gerði, er ég var nýkominn heim að vestan árið 1920,
og var að segja kennurum frá þessum nýju prófaðferð-
um. Eg bað kennara einn,1) sem ég þekti að nákvæmni
í einkunnagjöfum, að velja einhvern bekk, sem hann
þekti bezt. Hann skyldi raða börnunum eftir getu þeirra
í stafsetningu (þetta var íslenzkukennari) og skrifa
Kennarinn er Hallgr. jónsson. Vo'lar hann aö hér sé rélt hermt.