Eimreiðin - 01.10.1936, Page 98
442
EIMREIÐ1*
HRIKALEG ÖRLÖG
og hann brýzt út, þegar dyrnar verða opnaðar,“ sagði lið-
þjálfinn argur. Hann ætlaði að segja eitthvað fleira út af kviða
sínum fyrir því, að dómnum yrði ekki hægt að fullnægja a
réttan hátt, — en hætti snögglega, og um leið og hann rak upp
öskur, þreif hann byssu af einum hermannanna og einblíndi a
gluggann.
IV.
Gaspar Ruiz hafði klifrað upp á brjóstvörnina og sat þai
nú skorðaður með bogin kné, en spyrnti baki við múrnuio-
Ivarmurinn var ekki nógu breiður til þess, að fanginn gæti rétt
alveg lir sér. Ég hélt fyrst að hann ætlaði að leggja gluggai111
undir sig einn, og mér grömdust þessar aðfarir. Svo var að
sjá sem hann væri að koma sér þægilega fyrir. Enginn hinna
fanganna dirfðist að koma nálægt honum, nú þegar hann vai
laus og gat barið frá sér.
,,Por Dios!“ tautaði liðþjálfinn við hlið mér. „Það er bezt
ég skjóti kúlu í hausinn á honum strax, til þess að gera en<ta
á þessu uppistandi. Hann er dæmdur til dauða hvort sem er-
Ég leit reiðulega á hann og sagði: „Hershöfðinginn hefnr
ekki staðfest dóminn.“ Reyndar vissi ég vel, að þetta var að-
eins formsatriði. Dómurinn þurfti engrar staðfestingar við. En
ég bætti samt við ákveðinn: „Þér hafið enga heimild til
skjóta hann, nema hann reyni að flýja.“
„Sangre de Dios!“ öskraði liðþjálfinn og miðaði byssunm-
„Hann ætlar að brjótast út. Sjáið þér ekki!“
En það var eins og Gaspar Ruiz hefði heillað mig. Eldsnaí't
sló ég undir byssuhlaupið, svo kúlan þaut eitthvað út í loftiö-
Liðþjálfinn rak skeftið í jörð og starði hugfanginn. Han11
hefði getað skipað hermönnunum að skjóta, en hann gel
það ekki. Ég held líka að honum hefði eldd veri hlýtt í þetta
skifti, þó að hann hefði skipað.
Gaspar sat grafkyr, spyrnti fótum í múrinn og hélt 111
háðum höndum unx járnslárnar. Það var tilkomumikil sjon
Alt í einu sá ég, að hann rétti úr sér og rykti að sér höndunu111
Lágt urr lieyrðist út um afmyndaðar varir hans, og þnð 11 a“ ‘
sem við sáum, var, að smíðajárnsstöngin bognaði hægt
heljarafli átaks hans. Geislar sólarinnar féllu beint á afmý11