Eimreiðin - 01.07.1958, Page 122
254
EIMREIÐIN
von um óskaddaða nytsemi, ef þær skyldu við athugun hafa
heldur en annað haldið aðstöðu sinni.
Á meðan tregt var um prentun bóka, komst ekki á prent
nema úrval þess, er þó var samið, og þótt það úrval væri
framkvæmt af misvitrum mönnum og því tvísýnt nokkuð uffl
réttdæmi, þá var það framar vonum, og bar margt til. Má þai'
benda á tvo einvalda íslenzkrar prentunar: þá Guðbrand
biskup Þorláksson, á meðan hans naut við, og Magnús dórn-
stjóra Stephensen síðar.
Þótt finna mætti að þeirn eins og öðrum mönnum, voru
þeir hvor í sínu lagi á meðal gáfuðustu manna landsins, áhuga-
sömustu og bezt menntu, hefði ekkert sjálfræði samtímamanna
þeirra getað skilað hlutfallslega jafngóðum bókum á prent
og forræði þeirra gerði, þótt efunarlítið liafi þeir setið ein-
liverju góðu í ljósi. Kemur þá fram, að sökum aukinna úr-
ræða til útgáfu margs konar rita verða bókmenntir þjóðar-
innar lakara vegna meira framboðs á illu lesmáli og spiM'
andi, bæði hvað snertir tilgang, orðfæri og efni. Er þar raun-
in ólýgnust, því bæði eru nú á boðstólum lakar rituð og lélegn
verk en menn vita dæmi til áður, og eins er nú auðveldara
að komast í hráann á fleiri vegu en þann einn, að meira se
af honum. Dregur þannig að því sem sízt skyldi. Hinn þriðj1
og síðasti þáttur málvöndunar er einnig snjáður orðinn af
eggjum bölvaldsins í berginu óvígða.
Leita má úrbóta um eitthvað af þessu, til dæmis með þvl
að auka skyldur og skilyrði heimila til málskólunar barna
sinna. En svo torbreytt er atvinnuháttum þjóða og kröfun1
þeirra til ábyrgðarleysis, sérstaklega að rýra þær kröfur, aö
lítt virðist sá vegur umgengilegur til úrbóta. Þannig er hæþ
við, að tregt myndi veita, þótt reynt yrði, að fylla framsæt1
bíla með börnum bílstjórans, svo að hann gæti kennt þeun
að nefna það rétt, sem fyrir augun ber og tala um það af
því viti, er hann má ýtrast veita viðmælanda. Kynni jafnvej
að verða á þann hátt einhæfur árangur og tvísýnn. Svo mynd1
fara um fleiri störf, ekki hvað sízt vegna síaukinnar verka-
skiptingar, enda skal slíkt ekki rætt hér í alvöru.
Þá mun það og víst urn ofmörg heimili, að jafnvel þott
börn og foreldrar fengju aukin skilyrði til samvista, þá nýú'