Eimreiðin - 01.07.1958, Blaðsíða 150
282
EIMREIÐIN
laun og útbreiðsla), ef kröfum um listgildi þykir fullnægt-
Tveir eða fleiri höfundar gætu staðið saman um slíka
bók.
4. Ef velja þvrfti á milli skáldverka, sem að bókmenntagdd1
þætti mega leggja að jöfnu, réði fjárþörf höfundar úrslitum
honum í vil.
5. Sett yrði ákveðið lágmark um stærð útgáfubókar, t. d. 7
arkir, nema augljóst þætti, að sérstöku máli gegndi um eiH'
hverja bók, sem minni væri, en ritlaun yrðu svo jafnhá fyrlT
allar bækur útgáfunnar.
6. Ritlaun yrðu greidd á fjórurn árum, 50.000 kr. á ári. bh'
gáfan ætti fjárhagslega rýmra um vik með því móti, og óhóf-
leg skattlagning á höfunda væri útilokuð. Undantekninga1
yrðu samningsatriði við útgáfustjórn og skattayfirvöld.
7. Ekki kæmi bók eftir sama höfund á vegum útgáfunnar
oftar en á fjögurra ára fresti.
8. Að sjálfsögðu myndu allar áætlunartölur og þar með höf'
undarlaun breytast með breyttu verðgildi í landinu.
Með þessu móti hefðu 20 af fremstu höfundum þjóðarinnai
50.000 kr. fastar árstekjur frá útgáfunni. Þeir gætu því hafj
fífsframfæri af list sinni, og mvndi verða kleift að helga henm
starfskrafta sína óskipta.
III
1. Ákveðið yrði með tilskipun menntamálaráðuneytisins, að
bækur útgáfunnar yrðu hraðlesnar í frambaldsskólum lands
ins og nemendur látnir gera grein fyrir efni þeirra í heima
ritgerðum eins og tíðkað er í ýmsum löndum, svo sem Banda
ríkjum Norður-Ameríku.
2. Gert yrði ráð fyrir, að 2—3 bækur yrðu lesnar þannig il
vetri hverjum, og að öðru jöfnu útgáfubækur sama árs, þó a
skólastjórnum yrði frjálst að gera frá því undantekningai'-
3. Ákveðið yrði af skólastjórum og kennurum í hverjum