Eimreiðin - 01.07.1958, Side 153
EIMREIÐIN
285
6. Ef reiknað er með 125 kr. sem meðalverði á bók, fengju
tíu höfundar 15.000 kr. árlegan styrk með þessum hætti, söfn
landsins aukinn kost góðra bóka, og útgefendur einnig nokk-
uð í sinn hlut.
7. Þessi verðlaun yrðu ekki bundin við skáldverk eingöngu,
heldur kæmu til álita verk úr öðrum bókmenntagreinum.
8. Höfundur nýtur ekki þessa styrks, meðan hann er á laun-
um frá útgáfunni.
9. Styrkir þessir yrðu naumast veittir fyrr en á öðru útgáfu-
ári, þar sem þörf yrði fyrir þetta fé til að standa straum af
stofnkostnaði í formi auglýsinga, boðsbréfs o. s. frv.
10. Hér verða ekki gerðar tillögur um fvrirkomulag þess-
ara verðlaunaveitinga. Að sjálfsögðu yrði þó að setja um það
feglur í tíma og athuga margt, sem þar að lýtur, svo sem þá
hlið málsins, er að bókaútgefendum snýr. Ennfremur það,
hvort ekki væri rétt að verja nokkru af þessari upphæð með
öðrum hætti, t. d. í verðlaun fyrir þýðingar á erlendum skáld-
ferkum.
VI
1. Rithöfundasamband íslands sendi þessar tillögur öllum
^slenzkum rithöfundum hið fyrsta og boði jafnframt til al-
menns fundar með þeim, þar sem tillögurnar verði ræddar.
2. Kosnar verði á fundinum tvær nefndir, önnur til að forma
hetur þessar tillögur um útgáfuna eftir þeim athugasemdum,
sem fram kæmu á fundinum og að fenginni gleggri vitneskju
Uni eitt og annað. Ættu fulltrúar menntamálaráðuneytis,
Menningarsjóðs og áðurgreindra bókafyrirtækja sæti í þeirri
nefnd, auk rithöfunda. Hitt yrði framkvæmdanefnd, og yrði
þess farið á leit, að fulltrúar menntamálaráðuneytis og Menn-
lr>garsjóðs ásamt fulltrúum rithöfundasamtakanna og bóka-
tyrirtækja, er að útgáfunni stæðu, tækju þar sæti. Hin fyrri
uefndin lyki störfum hið fyrsta.
3- Framkvæmdanefnd réði þegar framkvæmdastjóra. Yrði