Uppeldi og menntun - 01.01.1999, Blaðsíða 155
ANNA MARIA STEINDÓRSDÓTTIR O.FL.
Lilja Rós sprautumálar á listadegi sumarsins.
gaman af því sem hann er
að gera og sjái tilgang með
því skiptir sköpum og er
þess vegna mikilvægt að
flétta æfingar saman við
áhugasvið hans.
' Líkamsþjálfun fer reglu-
lega fram á mismunandi
hátt. Farið er í sund, heit-
an pott og gönguferðir,
stunduð útivera, garðvinna
og hestamennska. Líkam-
leg þjálfun tengist iðulega
annarri þjálfun þar sem
unnið er með grip og sam-
hæfingu ásamt hugsun.
Sjúkraþjálfun skipar veigamikinn sess í starfi með skjólstæðingum Lækjaráss. Flestir
fara reglulega í sjúkraþjálfun, ásamt því að mikill tími fer í notkun ýmissa
hjálpartækja, s.s. standbekkja, göngugrinda og hand- og fótspelkna.
Vinna og verkþjálfun skipar stóran sess á Lækjarási. Um það bil helmingur
þeirra sem sækja þjónustu á Lækjarás vinnur við að pakka mjólkursýnisflöskum
fyrir Sigurplast og er þetta eina vinnan sem unnin er nú fyrir fyrirtæki. Þessi pökk-
unarvinna er mjög fjölbreytt og geta margir tekið þátt í einhverjum hluta hennar.
Komið er inn á ýmsa þætti, s.s. mikilvægi hreinlætis, samvinnu, frumkvæði, virkni,
úthald o.fl. Þeim hefur þó fækkað mikið undanfarin ár sem geta unnið við þetta.
Þeir getumestu hafa útskrifast héðan og farið annað og hingað hafa komið fatlaðri
einstaklingar sem ráða ekki við þessa vinnu.
Við höfum komið okkur upp verkefnasafni sem allir á staðnum hafa aðgang að.
Markmið þessara verkefna
er að þjálfa samhæfingu
augna og handa, fínhreyf-
ingar, einbeitingu, úthald og
skipulögð og sjálfstæð
vinnubrögð. í vinnu með
þessi verkefni er stuðst við
TEACCH-aðferðarfræði.
Aðferðin byggist á skipulagi
þar sem mikUvægt er að
einstaklingurinn átti sig á til
hvers er ætlast af honum.
Áhersla er lögð á að verk-
efnin henti getu hvers ein-
staklings og að þau séu fjöl-
breytt og áhugavekjandi.
Lilja Rós og Jórunn Lilja í pökkunarvinnu.
153