Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Page 151

Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Page 151
HELGI SKÚLI KJARTANSSON land merkt meðal ríkra landa. Bls. 130, kort af Evrópu 1991, ísland merkt EFTA og NATO. Ekkert virðist athugavert við neitt af þessu. íslenska efnið er þannig viðunandi að mestu, sumt þó varla nógu nákvæmt. Erlenda efnið þori ég síður að leggja dóm á, en líklega er umfjöllun traustari um þau lönd sem meira koma við sögu en ísland, enda hægara um vik með heimildir. • Þó má benda á örfá vafasöm atriði á Evrópukortum. A kort 169, urn hernaðar- bandalög í Evrópu, vantar aðild Spánar að NATO (frá 1982), og Malta (sjálfstæð 1964) er merkt Bretlandi. (Auk þess er Iran merkt sem „hlutlaust" og þó aðili að vestræna bandalaginu CENTO; hvort tveggja gæti staðist en ekki á sama tíma.) A korti 154, um stjórnskipan Evrópulanda 1938, er Ungverjaland ranglega merkt sem lýðræðisríki og upplýsingar vantar um að Irland sé lýðveldi. Einnig ber við að upplýsingar, sem í sjálfu sér eru réttar, séu skýrðar á ófull- nægjandi hátt. Á korti 63 eru t.d. sýndar „mikilvægustu verslunarleiðir víkinga", m.a. eftir endilangri Dóná og landleiðina austur frá Prag; þetta voru víst verslunar- leiðir á víkingaöld, en varla fjölfarnar af víkingum. Kort 65 á að sýna ríki Ottós mikla 936-973, en sum svæðamörk og svæðaheiti eiga ekki við fyrr en eftir hans dag, jafnvel löngu síðar (mörk Austurríkis og Bæheims). Orvar í vissum lit eiga skv. skýringu að tákna „herferð Ottós mikla 955", en raunar sýna þær allar helstu her- ferðir Ottós. Söguskýringar í lesmáli sé ég ekki betur en séu yfirleitt traustar. Eg hiraut þó um klausu í tímatalsyfirliti við árið 1492: „Flestir lærðir menn viðurkenna nú að jörðin sé hnöttótt en ekki flöt." Sem er í sjálfu sér rétt, en gengur út frá þeim þrálátu fordómum að lærðir menn á miðöldum hafi yfirleitt talið jörðina flata. Framsetning efnis á kortum er að jafnaði aðgengileg og skýr, nema hvað letur er víða smátt. Fyrir kemur líka að litir, sem tákna mismunandi hluti, eru óheppilega líkir, en annars er litaval þægilegt fyrir augað. Staðsetning nafna er á nokkrum stöðum ónákvæm, e.t.v. vegna flýtis við íslensku útgáfuna. (Verra er á korti 157, þar sem nafnið „Belgrad" hefur átt að hylja „Beograd" norsku útgáfunnar en lent þess í stað á hvolfi austur í Ukraínu, og á korti 103 koma fyrir eyður í nöfnum.) Kort eru þess eðlis að rúma hæglega mikið af stökum staðreyndum en minna af skýringum og samhengi. Lesmálið hjálpar heilmikið til við skilning á kortunum. Þó er það líka sett fram sem stakar upplýsingar að miklu leyti, t.d. þegar atburðarás er höggvin niður í annálsform. Stundum virðist þráðurinn tapast á milli. Tökum dæmi af krossferðunum (bls. 48-49). Sagt er frá fyrstu krossferð þar sem kristnir menn unnu Jerúsalem. I sama kafla er árangur þriðju krossferðar (1189-1192) sagður „aðeins þriggja ára leyfi til handa kristnum pílagrímum sem máttu koma að gröf- inni helgu í smáum, óvopnuðum hópum". Þetta er torskilið þeim sem ekki veit að kristnir menn voru búnir að tapa Jerúsalem og efndu einmitt til þriðju krossferðar til að endurheimta hana. En textinn er ekki til þess að lesa hann einan sér eins og venjulega bók. Á korti 67 er Jerúsalem merkt kristnum mönnum 1099-1187 og sýnd 149
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.