Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1998, Page 76

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1998, Page 76
og dráttarvaxta í tilefni greiðsludráttar er almennt séð ekki háður því skilyrði, að dráttur hafi varað í ákveðinn tíma eða haft alvarlegar afleiðingar í för með sér, sbr. athugasemdir við 9. gr. vxl. og 2. mgr. 49. gr. kpl.53 Þess er þó áður getið, að réttur leigusala til dráttarvaxta af vangoldinni húsaleigu er háður því skilyrði, að frestdagur samkvæmt 4. mgr. 33. gr. húsaleigul. sé liðinn, þ.e. liðnir séu sjö sólarhringar frá gjalddaga. Hinu sama gegnir um 3. mgr. 9. gr. vxl., en þar segir, að sé ekki samið um gjalddaga kröfu, er heimilt að reikna dráttarvexti, þegar liðinn er einn mánuður frá því kröfuhafi sannanlega krafði skuldara um greiðslu. 2.4.2 Verulegur greiðsludráttur I 21. og 28. gr. kpl., sem fjallar um greiðsludrátt af hálfu seljanda og kaup- anda í lausafjárkaupum, koma fram sjónarmið, sem almennt má leggja til grundvallar við mat á því, hvenær vanefnd telst það veruleg, að hún heimili riftun gagnkvæms samnings. Það, sem úrslitum ræður, er fyrst og fremst það, hvort greiðsludrátturinn hefur haft veruleg áhrif á hagsmuni kröfuhafa, og hvort skuldara hafi mátt vera það ljóst að svo yrði. Um mat á því, hvort greiðslu- dráttur réttlæti riftun, sjá t. d. H 1982 222, H 1985 3 og H 1994 979. " H 1982 222. L átti pantaðar þrjár bifreiðar hjá H. Viðurkennt var í málinu, að H gat ekki afhent L bifreiðarnar fyrir 30. maí 1971, eins og L óskaði og ekki fyrr en 10. júní 1971. Var L þá tilkynnt um, að bifreiðamar væru tilbúnar til afhendingar. Hæsti- réttur taldi að L hefði ekki mátt skilja þá tilkynningu þannig, að þess væri krafist, að hann vitjaði bifreiðanna og gerði skil á kaupverði þeirra þá þegar, sbr. 12. gr. laga nr. 39/1922. Því var ekki fallist á það með H, að heimilt hefði verið að rifta kaupunum hinn 15. júní á grundvelli 28. gr. kpl., jafnvel þó að um verslunarkaup hafi verið að ræða. H 1994 979. í kaupsamningi um fasteign í milli aðila var kveðið á um greiðslu kaup- verðs við undirskrift 1. maí 1993, auk yfirtöku veðskulda. Þá var þar skýrt ákvæði um, að kaupin myndu ganga til baka, ef umsamin greiðsla 1. maí drægist fram yfir tvo mánuði. Þar sem óumdeilt var að kaupandi innti þá greiðslu hvorki af hendi á til- skildum tíma né síðar, og þar sem brigður voru ekki bornar á, að seljendur hefðu staðið við sinn hluta samningsins, var talið, að lagaskilyrðum fyrir útburði væri full- nægt, sbr. 78. gr. laga nr. 90/1989. 121. gr. kpl. er fjallað um drátt seljanda á því að afhenda söluhlut. Þar kemur fram í 1. mgr., að kaupandi getur valið milli þess að rifta kaup eða heimta hlut- inn af því tilefni. í 2. mgr. segir hins vegar, að hafi drátturinn haft lítil áhrif eða 53 Alþt. 1986, þskj. 564. í 1. mgr. 49. gr. kpl. kemur fram, að bjóðist seljandi til að bæta úr göllum, sem em á seldum hlut, eða láta annan hlut ógallaðan í hans stað, þá verði kaupandi að sætta sig við það, ef það verður gert, áður en sá frestur er úti, sem hann var skyldur til að bfða afhendingar (sbr. 21. gr.), enda sé það augljóst, að hann hafi engan kostnað eða óhagræði af þessu. í 2. mgr. 49. gr. kemur síðan fram, að fyrirmæli 1. mgr. 49. gr. hafi engin áhrif á rétt kaupanda til skaðabóta. 328
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.