Dvöl - 01.07.1942, Síða 93

Dvöl - 01.07.1942, Síða 93
251 D V Ö L inn, fauk trékrossinn af leiði hans í stormviðri. Kona grafarans fann krossinn fjarri gröfinni og hag- nýtti sér hann sem eldsneyti. Þrem dögum eftir að útför Bontje fór fram, hefði grafaranum reynzt ó- kleift að vísa á legstað hans, þótt þess hefði verið farið á leit. Hefði legsteinn verið reistur á gröf Bontje, kynnu fornfræðing- ar komandi aldar að hafa fundiö hann. Þá kynni nafn Bontje hins þögla ef til vill að hafa heyrzt einu sinni enn í heimi þessum. Hann var aðeins skuggi. Enginn minntist hans né saknaði. Hann lét hvorki eftir sig arf- leifð né erfingja. Hann var ein- mana maður og yfirgefinn í lífi og dauða. Hefði háreysti heimsins eigi verið svo mikil sem raun bar vitni um, kynni svo að hafa farið, að einhverjum hefði verið frá því skýrt, hversu Bontje lét bugast undir byrði sinni. Hefði veröldin eigi verið vitfirrt, kynni einhver að hafa gefið gætur glóð augna hans, andliti hans, sem hafði lát- ið á sjá, og hversu hann laut jafn- an höfði, þótt hann bæri eigi byrði á herðum, eins og væri hann ævilangt að svipast um eftir gröf sinni. Hefðu mennirnir verið jafn- fáir dráttarklárunum í heiminum, kynni einhver að hafa borið fram spurningu sem þessa: — Hvað hef- ir orðið af Bontje? Þegar Bontje var fluttur i sjúkrahúsið, varð vistarvera hans ekki mannlaus. Fjöldi jafningja hans höfðu beðið hennar, og hún var veitt hæstbjóðanda meðal þeirra. Þegar lík hans var borið úr hengirúmi sjúkrahússins til lík- hússins, biðu tuttugu menn þess að koma í hans stað. Þegar hann var fluttur út úr líkhúsinu, voru tuttugu menn, er látizt höfðu af slysförum, bornir þangað inn..... Hver veit, hversu lengi hann fær að hvíla í friði í gröf sinni? Hver veit, nema hann sé fyrir einhverj- um einnig þar? Hann fæddist í heiminn í þögn, hann lifði lífinu í þögn, hann lézt í þögn, og í þögn var hann til grafar borinn. En raunin varð önnur í öðrum heimi. Þar vakti lát Bontje mikil- fenglega athygli. Hljómur lúðurs drottins barst um gervalla himnana sjö. — Bon- tje hinn þögli er dáinn. Englarnir svifu um á breiðum vængjum og tjáðu hverjir öðrum tíðindin: — Bontje hefir verið stefnt fyrir hinn æðsta dómstól. Himnaríki er vett- vangur gleði og fagnaðar. Bontje hinn þögli. Nafnið lætur sem dýrð- aróður í eyrum. — Bontje hinn þögli. Grannvaxnir litlir englar með blik i augum og gullna vængi, hlupu fagnandi til móts við Bon- tje á silfurskóm, hvatir í spori. Vængjaþyturinn, fótatakið og gleðihlátrarnir af rósavörum engl- anna litlu barst um veldi himn-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.